Tveir leikir fóru fram í 8-liða úrslitum Meistaradeildarinnar í kvöld og var þeim að ljúka núna rétt í þessu.
Real Madrid tók á móti Juventus í vægast sagt ótrúlegum leik þar sem allt virtist stefna í framlengingu þangað til Cristiano Ronaldo skaut heimamönnum áfram með marki úr vítaspyrnu.
Bayern Munich og Sevilla gerðu svo markalaust jafntefli og eru Þjóðverjarnir því komnir áfram í undanúrslit keppninnar.
Úrslit og markaskorara má sjá hér fyrirn eðan.
*Bayern Munich 0 – 0 Sevilla (Samanlegt 2-1)
*Real Madrid 1 – 3 Juventus (Samanlegt 4-3)
0-1 Mario Mandzukic (2′)
0-2 Mario Mandzukic (37′)
0-3 Blaise Matuidi (61′)
1-3 Cristiano Ronaldo (víti 93′)
Rautt spjald: Gianluigi Buffon (93′)