Sólveig Pétursdóttir, fyrrverandi dómsmálaráðherra og forseti Alþingis, segir að andlát eiginmanns hennar, Kristins Björnssonar, hafi kennt henni það hversu mikilvægt það er að nota tímann sem við höfum. Kristinn, sem er fyrrverandi forstjóri Skeljungs, lést þann 31. október árið 2015, 65 ára að aldri.
Sólveig ræðir þetta og fleira til í samtali við netmiðilinn Lifðu núna.
Þar kemur fram að Sólveig og Kristinn hafi verið lífsförunautar frá árinu 1973 og skömmu áður en hann lést hafi þau verið búin að kaupa sér íbúð á einni hæð í fjölbýli. Áður en þau fluttu þangað lést Kristinn en Sólveig er búin að koma sér þar vel fyrir.
„Það tók mig nokkurn tíma að átta mig á nýju hlutverki því nú var ég orðin ekkja. Það var ekkert í stöðunni annað en að halda áfram þótt sorgin væri mikil,“ segir hún og bætir við að við þá lífsreynslu að missa einhvern nákominn fari maður að átta sig á hversu mikilvægt það er að lifa lífinu núna.
„Allt sem ég hafði ætlað að gera en hafði ekki haft tíma til eða ætlaði alltaf að gera seinna var orðið of seint að gera með Kristni og þá varð svo kristaltært hversu miklu máli skiptir að nota tímann sem við höfum með ástvinum okkar,“ segir Sólveig sem gegndi embætti dóms- og kirkjumálaráðherra á árunum 1999 til 2003.
Eftir að Sólveig hætti á þingi hefur hún spilað golf mjög reglulega og þar sé á ferðinni íþrótt sem hafi hjálpað henni í gegnum veikindi og fráfall Kristins.