fbpx
Mánudagur 06.maí 2024

Stjörnur framtíðarinnar mættu í Borgarleikhúsið í dag

Sagan af Bláa hnettinum fer á fjalirnar í haust – Fullt hús í skráningu fyrir áheyrnarprufur

Ritstjórn DV
Miðvikudaginn 6. apríl 2016 18:12

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Borgarleikhúsið leitar nú að 22 börnum til að taka þátt í uppsetningu á Sögunni af bláa hnettinum eftir Andra Snæ Magnason en leikstjórn verður í höndum Bergs Þórs Ingólfssonar. Stefnt er að því að frumsýningu þann 17. september næstkomandi en í dag fóru fram skráningar fyrir áheyrnaprufur leiksýningarinnar þar sem fjöldi hæfileikaríkra barna mætti til leiks.

DV.is var á staðnum og en óhætt er að fullyrða að vandasamt verk bíði leikstjórans Bergs Þórs. Við ræddum við nokkrar af stjörnum framtíðarinnar sem mættar voru til að skrá sig.

Arney var mætt til að skrá sig í áheyrnarprufu fyrir Söguna af bláa hnettinum
Arney Arney var mætt til að skrá sig í áheyrnarprufu fyrir Söguna af bláa hnettinum

Þegar DV náði tali af Arney var hún búin að bíða í skamma stund í röð fyrir utan Borgarleikhúsið til að skrá sig. Aðspurð segir hún þetta vera í fyrsta skipti sem hún skráir sig í slíka prufu. Hún hafði verið búin að lesa Söguna af bláa hnettinum og var yfir sig spennt fyrir leiksýningunni.

Hallur var spenntur fyrir leiksýningunni
Hallur Hallur var spenntur fyrir leiksýningunni

Hinn átta ára gamli Hallur hafði einnig beðið í röð fyrir utan Borgarleikhúsið ásamt mömmu sinni í skamma stund. Hann var spenntur fyrir leiksýningunni, en hann hefur aldrei áður skráð sig í prufu fyrir leikrit. Hann hafði lesið Söguna af bláa hnettinum og fannst sýningin hljóma spennandi.

Líneik hefur einu sinni áður farið í prufu fyrir leiksýningu
Líneik Þula Líneik hefur einu sinni áður farið í prufu fyrir leiksýningu

„Nei, þetta er ekki í fyrsta skipti sem ég fer í prufu, ég fór í prufu fyrir Óvita þegar það voru prufur fyrir það,“ segir hin tólf ára gamla Líneik Þula, sem var mætt í Borgarleikhúsið til að skrá sig í prufur fyrir sýninguna. Hún hafði ekki verið búin að lesa söguna en þekkir samt innihald sögunnar. Henni þykir sýningin hljóma spennandi.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 3 klukkutímum

Vikan á Instagram – Hitti Gylfa Ægis á bensínstöð og knúsaði hann

Vikan á Instagram – Hitti Gylfa Ægis á bensínstöð og knúsaði hann
433Sport
Fyrir 3 klukkutímum

Stuðningsmönnum Liverpool brugðið – Eyðir öllu tengdu félaginu af samfélagsmiðlum

Stuðningsmönnum Liverpool brugðið – Eyðir öllu tengdu félaginu af samfélagsmiðlum
Eyjan
Fyrir 15 klukkutímum

Þessu svöruðu frambjóðendurnir þegar þeir voru spurðir út í kostnað við framboð þeirra – Gróflega áætlaðar krónutölur eða óræð ekki-svör

Þessu svöruðu frambjóðendurnir þegar þeir voru spurðir út í kostnað við framboð þeirra – Gróflega áætlaðar krónutölur eða óræð ekki-svör
Fókus
Fyrir 15 klukkutímum

Þetta eru stórmyndirnar sem biðu afhroð í miðasölu síðasta árs

Þetta eru stórmyndirnar sem biðu afhroð í miðasölu síðasta árs