Íslandsbanki hefur birt opinberlega stefnu á hendur Steingrími vegna skuldar upp á tæpar 30 milljónir
Íslandsbanki hefur stefnt Steingrími Wernerssyni til greiðslu skuldar sem nemur um 28 milljónum króna. Stefnan er birt í Lögbirtingablaðinu þar sem Íslandsbanki hefur ítrekað reynt að birta Steingrími stefnu án árangurs frá árinu 2014.
Steingrímur er búsettur í Bretlandi og barst bankanum staðfesting á því frá þar til bærum aðila í London að birting hefði ekki tekist, ítrekað væri búið að reyna að birta stefnuna fyrir Steingrími á þeim heimilisföngum sem upplýsingar voru um að hann hefði búið.
Lánið sem um ræðir er frá 2005 og var veitt til eignarhaldsfélagsins Vægi og átti að greiða skuldina árið 2010.
Steingrímur og Íslandsbanki hafa eldað grátt silfur eftir hrun en hann stefndi bankanum fyrir nokkrum árum og sakaði starfsmann bankans um saknæma hegðun. Krafðist hann þess að fá 400 milljónir endurgreiddar af af sölu á hlutabréfum í Glitni árið 2006, en þau voru að nafnverði rúmlega 23 milljónir króna en söluandvirðið tæplega 400 milljónir.
Bankinn millifærði söluágóðann inn á tékkareikning Steingríms og þaðan inn á reikning félagsins Milestone ehf, en á þeim tíma átti Steingrímur 23 prósenta hlut í Milestone, auk þess sem hann átti tæp 32 prósent í félagi sem átti þriðjung í Milestone. Þá átti bróðir hans, Karl Wernersson, einnig stóran hlut í Milestone.
Héraðsdómur Reykjavíkur hafði skikkað bankann til þess að greiða umrædda fjárhæð en Hæstiréttur snéri við þeirri niðurstöðu.
Taldi Hæstiréttur ljóst að Steingrímur ætti ekki rétt á umræddum fjárhæðum vegna þess að þær hafi ekki verið inni á tékkareikningi hans þann 15. október 2008, er Íslandsbanki yfirtók skuldbindingar Glitnis.
Af þessu leiddi að Steingrímur gat ekki beint kröfu sinni í málinu að Íslandsbanka á þeim grunni að bankinn hafi vegna skuldskeytingar orðið nýr skuldari kröfunnar.
Íslandsbanki skorar á Steingrím, að greiða skuld þá sem stefnan byggir á nú þegar eða koma ella fyrir dóm þegar málið verður þingfest í héraðsdómi, sem er héraðsdómur Reykjavíkur sem háð verður í Dómhúsinu við Lækjartorg í Reykjavík, þann 7. apríl
Mæti hann ekki mun svokallaður útivistardómur falla í málinu.