
Bazoumana Toure, tvítugur sóknarmaður Hoffenheim, er eftirsóttur af stórliðum á Englandi ef marka má þýska miðla.
Toure hefur átt frábært tímabil og komið að sautján mörkum með liði sínu. Það hefur vakið athygli liða eins og Arsenal, Liverpool og Manchester United.
Öll leita að styrkingu í sóknarleikinn fyrir sumarið, kannski sér í lagi Liverpool, sem er að missa Mohamed Salah eftir ótrúleg níu ár hans hjá félaginu.
Talið er að Toure myndi kosta hugsanlegan kaupanda rúmar 40 milljónir punda í sumar.