fbpx
Sunnudagur 03.maí 2026
Fréttir

Úthúða Ara og vara Reykvíkinga við því að kjósa Miðflokkinn – „Hefur sýnt konum kvenfyrirlitningu bara frá því ég kynntist honum fyrst“

Ritstjórn DV
Föstudaginn 1. maí 2026 11:00

Lára Ómarsdóttir hefur ekki góða sögu af segja af kynnum sínum af Ara Edwald.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Þung orð voru látin falla á Samstöðinni í gærkvöldi í garð Ara Edwald oddvita Miðflokksins í Reykjavík. Tvær konur sem rætt var við telja ótrúlegt hversu mikið fylgi flokkurinn sé að mælast með í borginni í ljósi þess að Ari sé þar í forystu. Töldu konurnar Ara alls endis óhæfan til að sitja í borgarstjórn og vildi önnur þeirra, fyrrum undirmaður Ara, meina að hann hefði lengi sýnt konum fyrirlitningu.

Ari kom til tals í dagskrárliðnum Reynsluboltar. Meðal þeirra sem rætt var þar við voru Auður Önnu Magnúsdóttir framkvæmdastýra Kvenréttindafélags Íslands og Lára Ómarsdóttir almannatengill og dagskrárgerðarkona.

Þegar talið barst að Miðflokknum og Ara töluðu Auður og Lára enga tæpitungu. Auður segist hafa sérstakar áhyggjur af því að Ari sé oddviti Miðflokksins og segir um hann:

„Hefur sýnt hræðilega kvenfyrirlitningu og þessi flokkur kemur aftur og aftur með kvenfyrirlitningu. Ég hef bara áhyggjur af því að það er verið að tromma upp svona fólk sem á ekkert að vera í pólitík.“

Upplýsti Auður í þættinum að hún ætlaði sér að kjósa Vinstrið en orðaði það þó þannig að hún ætlaði að veita oddvitanum Sönnu Magdalenu Mörtudóttur atkvæði sitt.

Ari og konurnar

Lára tók heilshugar undir með Auði um að henni þætti það afar óæskilegt að allt stefni í að Ari verði kjörinn í borgarstjórn:

„Mér þykir skelfileg tilhugsun að maður sem hefur sýnt konum kvenfyrirlitningu bara frá því ég kynntist honum fyrst … sé bara að fara inn í borgarstjórn.“

Lára var fréttakona hjá fyrirtækinu 365 miðlar, sem nú heitir Sýn, þegar Ari var forstjóri fyrirtækisins.

Lára hélt áfram að úthúða Ara í þættinum:

„Ég á bara ekki til orð yfir það að Reykvíkingar ætli sér að kjósa mann sem er kominn vel yfir miðjan aldur, fluttur inn frá Portúgal og hefur ekkert að bjóða ungu fólki, ekkert.“

Þess má geta að Ari verður 62 ára í júlí.

Innflutningur

Hvatti Lára til þess að miðaldra og eldra fólk leyfði ungu fólki að fá sviðið í aðdraganda sveitarstjórnarkosninganna sem eru eftir hálfan mánuð og hélt síðan áfram að tjá sig um Ara:

„Í alvörunni hvernig dettur fólki það í hug að það sé sniðug hugmynd að flytja inn mann frá Portúgal sem fór þangað af því hann vildi bara borga 10 prósent skatt, inn til Reykjavíkur. Hann fer niður í bæ og hefur ekki verið niðri í miðbæ síðan 1700 og súrkál.“

Er Lára þarna að vísa til kosningamyndbands Miðflokksins sem vakti mikla athygli og var umdeilt en þar má sjá Ara aka um miðbæ Reykjavíkur og kvarta yfir stöðu bílastæðamála í miðbænum. Lára segist búa í miðbænum og að það sem Ari haldi fram um skort þar á bílastæðum sé ekki rétt:

„Hann er bara bullari. Hann á bara að heita Bull-Ari eða skattsvikari, eða svikari eða eitthvað. Halló ekki kjósa Miðflokkinn í Reykjavík.“

Lára vísar þarna einnig til þess að Ari flutti lögheimili sitt frá Portúgal til Reykjavíkur í aðdraganda þess að hann var útnefndur oddviti Miðflokksins en lögheimili Ara er í miðborginni.

Lára segist ekki vera búinn að ákveða hvaða flokk í Reykjavík hún ætlar að kjósa. Hún segist heldur ekki skilja hvers vegna Sjálfstæðisflokkurinn tefli fram Brynjari Níelssyni, sem er eldri en Ari. Lára hvetur til þess að ungt fólk móti frekar framtíðina en það eldra:

„Leyfum svolítið framtíðinni að taka ákvörðun um framtíðina.“

Horfa má á dagskrárliðinn Reynsluboltar á Youtube-rás Samstöðvarinnar og í myndbandinu hér fyrir neðan. Umræðan um Ara hefst á 45. mínútu.

 

 

 

 

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Virtur miðill fjallar um sundlaugamenningu Íslands og greinir frá áhyggjum Íslendinga – „Við viljum halda þessu út af fyrir okkur“

Virtur miðill fjallar um sundlaugamenningu Íslands og greinir frá áhyggjum Íslendinga – „Við viljum halda þessu út af fyrir okkur“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Danska konan skuldar Gunnari um 11 milljónir – „Ég er alveg brjálaður yfir þessu“

Danska konan skuldar Gunnari um 11 milljónir – „Ég er alveg brjálaður yfir þessu“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Eiríkur fékk ábendingu um hver sendi nafnlausa bréfið um afa hans – „Aldrei djók eða fyndið“

Eiríkur fékk ábendingu um hver sendi nafnlausa bréfið um afa hans – „Aldrei djók eða fyndið“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Benedikt á inni greiðslur hjá Dönsku konunni – „Því miður klassískt í íslenskri kvikmyndagerð að fólk fresti laununum sínum“

Benedikt á inni greiðslur hjá Dönsku konunni – „Því miður klassískt í íslenskri kvikmyndagerð að fólk fresti laununum sínum“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Segja fjárhagsstöðu Seltjarnarness enn versna – Handbært fé um áramót dugði fyrir 3 daga rekstri

Segja fjárhagsstöðu Seltjarnarness enn versna – Handbært fé um áramót dugði fyrir 3 daga rekstri
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Fjórir í gæsluvarðhaldi í umfangsmiklu fíkniefnamáli

Fjórir í gæsluvarðhaldi í umfangsmiklu fíkniefnamáli