
Vincent Kompany, sem er að slá í gegn með Þýskalandsmeistara Bayern Munchen, segist hafa hafnað því að starfa sem sparkspekingur í kringum HM í sumar.
Belganum, eins og þjálfurum og fleirum sem tengjast leiknum, var boðið að vera spekingur en hann hafði engann áhuga á því.
„Það er ekki séns,“ sagði hann einfaldlega um málið. Fjölskyldunnar vegna var það ekki mögulegt.
„Af hverju ætti ég að eyða fríinu mínu í það? Þá væri engin fjölskylda með mér í Munchen á næstu leiktíð,“ sagði Kompany enn fremur léttur.