

Kobbie Mainoo er sagður hafa náð munnlegu samkomulagi um nýjan samning við Manchester United.
Sagt er að Mainoo muni fái 150 þúsund pund í laun á viku og þar með fimmfalda laun sín.
Samkvæmt fréttum mun enski landsliðsmaðurinn skrifa undir fimm ára samning við félagið, sem er stórt skref fyrir United í að tryggja framtíð eins af efnilegustu leikmönnum sínum.
Mainoo, sem er 21 árs, hefur slegið í gegn með aðalliði Manchester United og fest sig í sessi sem lykilmaður á miðjunni.
Frammistaða hans hefur vakið mikla athygli og gert hann að mikilvægum hluta af uppbyggingu liðsins.
Félagið hefur því lagt mikla áherslu á að halda honum innan sinna raða til lengri tíma.