

Í nýju viðtali við Daily Mail greinir Tierney frá því hvað rannsókn málsins leiddi í ljós um samband þeirra hjóna. Heuermann játaði fyrr í apríl að hafa myrt átta konur á árunum 1993 til 2010. Hann á yfir höfði sér lífstíðardóm án möguleika á reynslulausn þegar endanleg refsing verður kveðin upp í málinu þann 17. júní næstkomandi.
Áður hefur komið fram að Ása kynntist Heuermann þegar hún var 18 ára gömul og vann í verslun 7-Eleven. „Ég var brjálæðislega ástfangin af manninum, það er enginn vafi á því. En svo kynntist ég fyrri eiginmanni mínum og giftist,“ sagði hún í viðtali í heimildarþáttaröðinni The Gilgo Beach Killer: House of Secrets, sem frumsýnd var í fyrrasumar.
Þegar hjónaband Ásu og fyrri eiginmanns hennar tók stefnu í ranga átt segir hún að Heuermann hafi hjálpað henni að fá skilnað. Í nóvember 1995 bauð hann henni að flytja inn á heimili sitt á Long Island og þáði hún það. Ekki löngu síðar varð hún ólétt af þeirra fyrsta barni og gengu þau í hjónaband árið 1996.
Ása hefur haldið því fram að hún hafi ekkert vitað um hryllilega glæpi eiginmannsins og margir hafa velt fyrir sér hvernig hún gat deilt lífi sínu með raðmorðingja án þess að hafa hugmynd um það. Tierney segir að margra ára rannsókn hafi ekki leitt í ljós nein sönnunargögn um að hún hafi vitað af morðunum.
„Alls ekki neitt. Ég held að hún hafi vitað að sakborningurinn átti við önnur vandamál að stríða, en það eru engin gögn sem benda til að hún hafi vitað að hann væri að myrða fólk. Alls ekki,“ segir hann í viðtalinu.
Þegar hann var spurður hvort hún vissi að hann héldi framhjá henni með vændiskonum svaraði hann einfaldlega: „Ég held að hún hafi vitað að hann hafði önnur áhugamál.“ (Greinin heldur áfram fyrir neðan myndina)

Fórnarlömb Heuermanns voru ungar konur sem störfuðu sem vændiskonur þegar þær hurfu skyndilega. Leifar þeirra fundust á afskekktum svæðum á Long Island og höfðu sumar þeirra verið limlestar.
Í rannsókninni á Gilgo Beach-morðunum kom í ljós að samband þeirra Heuermanns og Ellerup var ekki það sem kalla mætti hefðbundið. Heuermann stjórnaði öllum þáttum heimilislífsins og fjármálum.
„Venjulega, þegar um er að ræða gerendur með áráttukennda hegðun, umgangast þeir ekki fólk sem er mjög tortryggið,“ segir Tierney og bendir á að í hefðbundnum samböndum viti makar yfirleitt um fjármál og ferðir hvors annars – en svo virtist ekki hafa verið í þessu tilfelli. „Ég held að það hafi ekki verið þannig í þessu sambandi,“ segir hann.
„Heuermann vildi stjórna. Hann stjórnaði fjármálunum. Hann stjórnaði í raun öllu. Þetta var ekki dæmigert samband,“ segir Tierney í viðtalinu.
Hann segir að Ása hafi ekki verið sú eina sem lét blekkjast af Heuermann. Sjálfur átti Tierney í samskiptum við hann og segir hann hafa verið „nákvæman“, „útsmoginn“, „snjallan“ og með „yfir meðallagi greind“.
„Hann er mjög góður í að láta líta út fyrir að vera sá sem hann heldur að þú viljir að hann sé,“ sagði hann.
„Þess vegna héldu ekki bara fjölskylda hans heldur líka fólk sem þekkti hann og vann með honum að hann væri ekki fær um það sem hann hefur verið sakfelldur fyrir. Ég held að honum hafi líkað að lifa í þeirri stöðu að vera ekki sá sem hann virtist vera.“
DV greindi frá því í gær að lokaþáttur heimildarþáttaraðar NBC um málið verði sýndur vestan hafs á morgun. Í broti úr þættinum, sem birt var í vikunni, lýsir Ása meðal annars því þegar eiginmaður hennar játaði morðin fyrir henni.
„Ég sagði við hann: „Herra Heuermann, mér skilst að þú sért að játa þessi morð fyrir mér?““ segir hún. „Geturðu sagt mér hversu margar þessara kvenna þú drapst?“ Hann sagði átta.“