fbpx
Þriðjudagur 28.apríl 2026
Pressan

Trixið sem fagmenn nota til að sleppa við rendur eftir rúðuþurrkurnar

Pressan
Laugardaginn 25. apríl 2026 18:30

Eins gott að rúðuþurrkurnar séu í góðu lagi.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Veturinn lætur bílana okkar finna fyrir því og margir ökumenn lenda í því að rúðuþurrkurnar byrja að skilja rendur eftir sig á framrúðunni. Margir telja að þá sé kominn tími til að skipta um þurrkublöð en í mörgum tilfellum þarf þess ekki því það er til einfaldari og ódýrari lausn.

Rendur koma yfirleitt á framrúðuna þegar þurrkublöðin þrífa glerið ekki lengur jafnt. Á veturna er ástæðan fyrir því oft að drulla, salt og leifar af rúðuvökva safnast saman og setjast í æðar gúmmísins.

Margar tegundir rúðuvökva innihalda glýserín en það sér til þess að gúmmíið sé slétt í kuldanum. Með tímanum getur glýserínið þó oft skilið eftir sig fituskán sem dregur úr gæðum þurrkublaðanna og þar með verður útsýnið úr bílnum verra.

Vezess skýrir frá þessu og segir að bifvélarvirkjar mæli með að fólk reyni að þrífa þurrkublöðin vel áður en rokið er til og ný keypt.

Eldhúspappír eða fibertuska, sem eru vætt með glerhreinsi eða mildu hreingerningarefni, getur dugað til.

Brúnir gúmmísins eru þurrkaðar vel og vandlega eða þar til skítur og annað er farið af. Um leið ætti að þrífa framrúðuna með höndunum því drulla getur setið í litlum sprungum í henni og valdið því að rendur myndast.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Í gær

Settu eitt kíló af salti undir rúmið í nótt – Þetta er ástæðan

Settu eitt kíló af salti undir rúmið í nótt – Þetta er ástæðan
Pressan
Í gær

Var meðvitundarlaus dögum saman – Segir frá hvernig upplifun það var

Var meðvitundarlaus dögum saman – Segir frá hvernig upplifun það var
Pressan
Fyrir 2 dögum

Sérfræðingur segir þetta atvinnugreinarnar þar sem mestar líkur séu á að makinn haldi framhjá þér

Sérfræðingur segir þetta atvinnugreinarnar þar sem mestar líkur séu á að makinn haldi framhjá þér
Pressan
Fyrir 2 dögum

Bifvélavirkjar segja þessar fjórar bílategundir sé best að kaupa ekki

Bifvélavirkjar segja þessar fjórar bílategundir sé best að kaupa ekki