fbpx
Þriðjudagur 26.maí 2026
433Sport

Sölvi skoðaði umdeilda atvikið og er ósáttur – „Mjög dýrkeypt að það hafi ekki fallið með okkur“

Helgi Fannar Sigurðsson
Föstudaginn 10. apríl 2026 22:24

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Sölvi Geir Ottesen þjálfari Víkings var sáttur með seinni hálfleik sinna manna í opnunarleik Bestu deildar karla gegn Breiðabliki í kvöld en svekktur með að vinna ekki.

Blikar byrjuðu af krafti og kom Kristófer Ingi Kristinsson þeim yfir eftir laglega sendingu frá Ágústi Orra Þorsteinssyni, en hugsanlega má spyrja hvort Oliver Ekroth hefði getað gert betur og hreinsað frá.

Víkingur var mun sterkari í seinni hálfleik og jafnaði á 71. mínútu með marki Gylfa Þórs Sigurðssonar eftir mistök Antons Ara Einarssonar í marki Blika. Meira var ekki skorað og lokatölur 1-1.

„Mér fannst við byrja vel, vorum með fín tök án þess að skapa okkur neitt. Við vissum að að þetta yrði þolinmæðisverk á móti fimm manna vörn. Þeir fá svo frekar ódýrt mark, klaufaskapur hjá okkur. Það tók okkur smá tíma að vinna úr því höggi og það var mikið um tæknifeila og þess háttar í fyrri hálfleiknum.

En ég er mjög sáttur með hvernig við komum út í þann seinni. Við vorum öruggari á boltann og þorðum að horfa fram á við, vorum aðeins búnir að hrista af okkur skjálftann. Við áttum sigurinn skilið fannst mér, fengum fullt af færum í seinni hálfleik til að skora fleira en eitt mark,“ sagði Sölvi við 433.is eftir leik.

Víkingur vildi víti í restina þegar boltinn fór í hönd Ásgeirs Helga í liði Breiðabliks.

„Ég set stórt spurningamerki við höndina hérna í lokin. Ég fékk að kíkja á þetta uppi á skrifstofu og hann er klárlega með höndina úti og það er mjög dýrkeypt að það hafi ekki fallið með okkur,“ sagði Sölvi um það.

Ítarlegt viðtal við Sölva er í spilaranum hér ofar.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Í gær

Luke Shaw í sögubækur Manchester United

Luke Shaw í sögubækur Manchester United
433Sport
Í gær

De Zerbi brattur eftir að hafa bjargað Spurs frá falli – Boðar það að kaupa hetju dagsins

De Zerbi brattur eftir að hafa bjargað Spurs frá falli – Boðar það að kaupa hetju dagsins
433Sport
Fyrir 2 dögum

Tómas svo gott sem bugaður vegna gengisins – „Var smá að vonast til þess að þeir myndu enda þjáningar mínar“

Tómas svo gott sem bugaður vegna gengisins – „Var smá að vonast til þess að þeir myndu enda þjáningar mínar“
433Sport
Fyrir 2 dögum

Björn sat furðu lostinn fyrir framan sjónvarpið á dögunum – „Það er svo fáránlegt, hvernig getur það gerst“

Björn sat furðu lostinn fyrir framan sjónvarpið á dögunum – „Það er svo fáránlegt, hvernig getur það gerst“
433Sport
Fyrir 2 dögum

Guardiola segir frá fallegum skilaboðum sem hann fékk frá Ferguson í gær

Guardiola segir frá fallegum skilaboðum sem hann fékk frá Ferguson í gær
433Sport
Fyrir 2 dögum

City setur allt í botn og vilja Enzo frá Chelsea

City setur allt í botn og vilja Enzo frá Chelsea