

Þjóðin syrgir hinn ástsæla söngvara, Björgvin Halldórsson, sem varð bráðkvaddur á heimili sínu í nótt. Andlátsfréttin kom flestum í opna skjöldu og missirinn er mikill.
Fjölmargir þjóðkunnir Íslendingar minnast Björgvins með skrifum á samfélagsmiðlum í dag. Meðal þeirra er blaðamaður Vísis, Jakob Bjarnar Grétarsson, sem skrifar:
„Ég er algjörlega miður mín. Bó var með skemmtilegri mönnum, sonur Hafnarfjarðar og vinur minn. Þetta er áfall. Þetta er enginn aldur. Blessuð sé minning Björgvins.“
Bæði fyrrverandi og núverandi bæjarstjórar Hafnarfjarðar minnast söngvarans og Hafnfirðingsins, Björgvins. Rósa Guðbjartsdóttir, fyrrverandi bæjarstjóri og núverandi þingmaður Sjálfstæðisflokksins, segir að Björgvin hafi verið mikill Hafnfirðingur sem hafi þótt sérlega vænt um bæinn:
„Þau sorglegu tíðindi bárust í morgun að einn okkar ástsælasti tónlistarmaður Björgvin Halldórsson væri látinn. Allt frá því Bjöggi sló fyrst í gegn fyrir hátt í 60 árum hefur stjarna hans skinið skært.
Hann og lögin hans hafa átt sérstakan hjartastað í hugum allra Íslendinga og eru ríkur þáttur af dægur- og tónlistarmenningu okkar.
Björgvin var sérlega stoltur Hafnfirðingur. Honum þótti innilega vænt um bæinn sinn og var gaman að heyra hann rifja upp sögur frá uppvaxtarárum sínum í Hafnarfirði. ,,Litlu jólin“ sem hann hefur haldið í Bæjarbíói á Þorláksmessukvöld undanfarin ár voru einstök. Þar sem hann, oftast með börnum sínum, söng inn jólin á sinn hlýja og fallega máta. Einnig hefur hann frá upphafi bæjarhátíðar okkar Hafnfirðinga, ,,Hjarta Hafnarfjarðar“ opnað hátíðina með tónleikum og lýst því jafnan við það tilefni hve ánægður hann væri með þróun tónlistarmenningar bæjarins og uppbyggingu og hlutverk Bæjarbíós í þeim efnum.
Framlag Björgvins verður seint fullþakkað en Hafnarfjarðarbær heiðraði Björgvin og útnefndi hann sem bæjarlistamann Hafnarfjarðar árið 2018. Ári síðar afhjúpaði hann fyrstu stjörnuna í gangstéttina fyrir framan Bæjarbíó sem tileinkuð var honum. Hann var innilega þakklátur og stoltur af hvorutveggja.
Björgvins verður sárt saknað en lögin hans munu lifa með okkur.
Ég mun ætíð minnast Björgvins með mikilli hlýju enda alltaf gaman að hitta hann, hvort sem var á förnum vegi eða á tónlistarviðburðum.
Fjölskyldunni votta ég mína dýpstu samúð.
Blessuð sé minning Björgvins Halldórssonar“
Valdimar Víðisson, bæjarstjóri Hafnarfjarðar, segir að stórt skarð sé höggvið í hafnfirskt samfélag með fráfalli Björgvins:
„Björgvin var ekki bara stór listamaður heldur líka afar öflugur Hafnfirðingur sem gaf samfélaginu okkar ómetanlega mikið. Hann var stoltur Hafnfirðingur og var hluti af þeirri sögu, menningu og stemningu sem gerir Hafnarfjörð að því sem hann er. Fyrir það verðum við ávallt þakklát.
Framlag hans til íslensku þjóðarinnar er líka ómetanlegt. Með rödd sinni, lögum og nærveru snerti hann hjörtu fólks um allt land og skilur eftir sig arfleifð sem mun lifa áfram um ókomin ár. Lögin hans munu halda áfram að hljóma og minna okkur á þann mikla mann sem hann var.
Ég sendi fjölskyldu hans, vinum og öllum aðstandendum mínar dýpstu samúðarkveðjur á þessari sorgarstundu.
Blessuð sé minning Björgvins Halldórssonar.“
Söngvarinn ástsæli, Friðrik Ómar, segir að Björgvin hafi verið sín fyrirmynd:
Björgvin Halldórsson var mín fyrirmynd sem söngvari, framleiðandi og performer. Hann hafði þetta allt og ótrúlega yfirsýn sem hreinlega breytti leiknum í viðburðahaldi á Íslandi. Þar fyrir utan var hann frábær sögumaður og fannst fátt skemmtilegra en að hitta kollega og tala um „bransann”. „Tölum saman!” sagði hann oft, svo áhugasamur og spenntur ef eitthvað var í burðarliðnum. Allir frasarnir, maður minn!
Goðsögn í lifanda lífi sem nú er horfin á braut.
Herrann hefur sent Gullvagninn alltof snemma.
Blessuð sé minning þín elsku Björgvin og takk fyrir alla kennsluna.
Ég sendi Ragnheiði, Sigga, Krumma, Svölu, fjölskyldu og vinum mínar dýpstu samúðarkveðjur. Guð styrki ykkur í sorginni.
Útvarpsmaðurinn Ívar Guðmundsson segir að Björgvin hafi verið góður drengur og þjóðargersemi:
„Leiðir okkar Björgvins lágu fyrst saman þegar ég var að vinna á skemmtistaðum Ypsílon í Kópavogi 1984 og þá komu þeir HLH kappar að skemmta reglulega Halli, Laddi og Helgi eins og Björgvin hét að millinafni. Frá þeim tíma hitti ég hann oft en hann síðan réð mig í vinnu á Bylgjunni 1995 en hann var þá dagskrárstjóri.
Við höfum alltaf náð vel saman og það er mikill missir af honum og það fyrir auðvitað þjóðina alla.
Fjölskyldu hans vil ég senda mínar dýpstu samúðarkveðjur“
Stefán Eiríksson útvarpsstjóri skrifar: „Sorgarfrétt: Hlýjar kveðjur til aðstandenda og vina.“
Söngvaskáldið Gímaldin, öðru nafni Gísli Magnússon, skrifar:
„Röddin hljóðnuð. Þetta er svakalegt.
Votta þjóðinni samúð.
Einn félagi minn notaði Bo sem eitt af fjölmörgum sínum listamannsnöfnum og alteregóum. Brandarinn var sá að það væri svo geggjað fjarstæðukennt að láta einsog það gætu verið fleiri en einn Bo
Takk fyrir mig félagi Björgvin.“
Halldór Högurður markaðsmaður rifjar upp skemmtilega sögu um samskipti sín við Björgvin:
„“Erkióvinurinn“ allur!
Þegar ég var með þætti á Aðalstöðinni í fyrndinni var ég alltaf með eitthvað Björgvins-grín og meira að segja var eitt af stefjum þáttarins „Þú ert að hlusta á Bland í poka með Halldóri, eina þáttinn sem spilar engin lög með Björgvini Halldórssyni“
Einn daginn sit ég í stúdíói og sé út um glugga hvar bíll merktur Stöð 2 rennur í hlað og pjakkur stekkur út með a4 umslag í hönd og hleypur inn í húsið. Þegar hann svo gengur inn í stúdíóið til mín og otar að mér umslaginu var ég þess fullviss að snilld mín hefði loksins verið uppgötvuð og þarna væri mér að berast tilboð um atvinnu … það sem upp úr umslaginu kom var 9×12 glansmynd af Björgvini árituð „Með kærri kveðju, Björgvin“
Ég verð að viðurkenna að þetta var déskoti smart“
Fjölmiðlamaðurinn Frosti Logason minnist Björgvins með hlýhug:
„Það var reiðarslag að fá fregnir af andláti Björgvins Halldórssonar í morgun.
Björgvin var ekki bara einn dáðasti listamaður þjóðarinnar – heldur líka einstök manneskja. Ég fékk að kynnast honum í gegnum vináttu mína við Krumma, son hans, og frá fyrsta degi mætti ég hlýju, velvild og stuðningi sem ég fann alltaf frá honum, allt til hinsta dags.
Hann hafði þann einstaka eiginleika að láta fólki líða vel í kringum sig. Það er dýrmæt gjöf – og arfleifð sem lifir áfram eins og tónlistin hans.
Þetta er harmafregn fyrir alla þjóðina. En fyrir okkur sem þekktum hann líka persónulegt. Hugur minn er hjá Krumma, Svölu systur hans og Ragnheiði móður þeirra á þessum erfiðu tímum.
Takk fyrir allt, Björgvin.
Minning þín lifir.“
Myndlistarmaðurinn Jón Óskar skrifar:
„Björgvin Halldórsson er látinn og mér finnst það vont. Strákurinn í Bendix sem spilaði fyrir okkur Dóru og Herdísi í Garðahreppi.
Í gærkvöld fór ég að spila Bjögga og Brimkló sem ég hef ekki gert lengi. Í morgun vakna ég og hann er dáinn. Elsku drengurinn mikið þótti mér vænt um hann
Samúðarkveðjur til allra“
Grímur Atlason, framkvæmdastjóri Geðhjálpar, skrifar:
„Björgvin Halldórsson poppstjarna Íslands sl. 57 ár er allur. Ótrúlegur maður og þjóðargersemi. Ég talaði fyrst við hann í Hljóðrita í Hafnarfirði vorið 1989 – hann var töffari en kom vel fram við vitlausa indípönkara sem voru að reyna að taka upp tónlist.
Blaðamaður: „Björgvin, hvaða tónlist er nú skemmtilegast að spila?“
„Björgvin: Ballads, langskemmtilegast að spila ballads.“
Blessuð sé minning Björgvins Halldórssonar.“
Söngvarinn og eftirherman Eyþór Ingi á er harmi sleginn yfir fráfalli Björgvins.
„Þakka þér fyrir allar minningarnar, sögurnar, tækifærin en umfram allt vináttuna, þú mikli höfðingi.
Orðheppinn með eindæmum, þræl fyndinn, kaldhæðinn en umfram allt svo hlýr og skemmtilegur.
Maður sviðs og söngva.
Guðfaðir dægursöngsins.
Það var heiður að fá að kynnast þér og vinna með þér. Minningarnar hrannast upp og þær geymum við hin.
“Það er komið Go“… .. Hvíl í friði elsku vinur“
Dóttir Björgvins, Svala Björgvins söngkona, kveður föður sinn með þessum hætti á Instagram:
