

Ragnar Freyr Ingvarsson læknir greindi frá því á Facebook í gær að honum hefði verið sagt upp störfum á Landspítalanum. Þar hafði hann verið í 33 prósent hlutastarfi sem sérfræðingur í almennum lyflækningum í Fossvogi. Undanfarna tvo mánuði og næstu sjö hafði hann skráð sig í launalaust leyfi.
Vísir greindi frá því áðan að Ragnari hefði verið boðið að hækka starfshlutfallið upp í 80-100 prósent. Hafði miðillinn það eftir Rafni Benediktssyni, framkvæmdastjóra bráða-, lyflækninga- og endurhæfingarþjónustu Landspítalans. Rafn fullyrti að Ragnar Freyr væri meðvitaður um að honum stæði til boða að hækka starfshlutfallið og tæki hann því boði yrði hann velkominn aftur til starfa.
Ragnar Freyr kannast ekkert við þetta tilboð en hann skrifar á Facebook: „Landspítali hefur ekki verið í sambandi við mig varðandi aukið starfshlutfall. Enginn fundur hefur verið boðaður í dag. Í samtali mínu við Rafn í gær var mér ekki boðið aukning á starfshlutfalli heldur skýrt greint frá því að starf mitt væri lagt niður og mér því sagt upp. Hér er því farið með fleipur.“
Rafn ræddi við RÚV fyrr í dag og greindi þar frá því að uppsögn Ragnars tengist aðhaldskröfu stjórnvalda. Til að mæta henni hafi verið ráðist í að fækka starfsfólki sem er í lægra starfshlutfalli en samhliða stendur til að fjölga starfsfólki í hærra hlutfalli. Staðan sé sú að það séu margar stöður hjá spítalanum sem eru mjög litlar en ekki nýttar. Þessar stöður komi í veg fyrir að Landspítalinn geti ráðið fólk inn í hærra hlutfalli, en eins og áður segir þá var Ragnar Freyr í 33 prósenta starfshlutfalli og var að taka sér 9 mánaða launalaust leyfi.