fbpx
Laugardagur 02.maí 2026
Fréttir

Lögsækja Björgólf Thor vegna njósnamálsins

Ritstjórn DV
Miðvikudaginn 8. apríl 2026 12:07

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Vilhjálmur Bjarnason fyrrverandi alþingismaður og Ólafur Kristinsson lögmaður hafa stefnt athafnamönnunum Björgólfi Thor Björgólfssyni og Birgi Má Ragnarssyni og krefjast bóta. Er Björgólfi Thor og Birgi stefnt fyrir njósnir, brot gegn rétti til einkalífs, umsáturseinelti og brot á persónuvernd. Er stefnan lögð fram í kjölfar víðtækra persónunjósna sem fyrirtækið PPP stóð fyrir, að sögn á vegum Björgólfs Thors, árið 2012.

RÚV greinir frá þessu.

Fjallað var um njósnamálið á síðasta ári.

Björgólfur Thor sagður hafa borgað 33 milljónir fyrir njósnir gegn aðilum tengdum hópmálsókn gegn sér – „Ég er bara mjög sleginn yfir þessu“

Fyrirtækið PPP fylgdist með Vilhjálmi, Ólafi og fleiri aðilum sem voru aðilar að hópmálsókn gegn Björgólfi Thor í tengslum við fall Landsbankans. Meðal annars tók starfandi lögreglumaður þátt í njósnunum.

Björgólfur vildi hins vegar meina að hann hefði ekki greitt fyrirtækinu eins háa fjárhæð og haldið hefði verið fram og það hefði gengið miklu lengra en hann hefði nokkurn tímann beðið um.

Fram kemur í frétt RÚV að á þeim tíma sem njósnirnar fóru fram hafi Birgir Már verið framkvæmdastjóri félags Björgólfs Thors, Novator.

Vilhjálmur og Ólafur krefja Birgi Má og Björgólf Thor hvoran um sig um 66 milljónir króna í bætur auk dráttarvaxta.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Naut „stjaksetti“ einn frægasta nautabana Spánar á endaþarminum – Getur ekki sofið eða borðað

Naut „stjaksetti“ einn frægasta nautabana Spánar á endaþarminum – Getur ekki sofið eða borðað
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Ævintýri Tinna í dómsal – Belgískt félag stefndi Pennanum fyrir brot gegn höfundarrétti

Ævintýri Tinna í dómsal – Belgískt félag stefndi Pennanum fyrir brot gegn höfundarrétti