fbpx
Laugardagur 02.maí 2026
Fréttir

Terra opnar fyrir umsóknir um styrki

Ritstjórn DV
Þriðjudaginn 7. apríl 2026 15:51

Erna Björk Häsler, markaðsstjóri Terra

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Umhverfis- og nýsköpunarstyrktarsjóður Terra hefur opnað fyrir umsóknir um styrki til verkefna sem stuðla að hringrásarhugsun, draga úr umhverfisáhrifum eða bæta úrgangsstjórnun. Frá þessu greinir Terra í tilkynningu en þetta er í fyrsta skipti sem fyrirtækið veitir styrki til slíkra verkefna.

Haft er eftir Ernu Björk Häsler, markaðsstjóra Terra, að leitað sé eftir frumlegum lausnum sem bæta nýtingu auðlinda, efnisstrauma eða stuðla að sjálfbærari samfélögum. Verkefnin þurfa að styðja við sjálfbærnistefnu Terra og heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna um sjálfbæra þróun sem félagið leggur áherslu á. Umsóknarfrestur er til 1. júní 2026.

„Við hjá Terra viljum styðja við aðila sem vinna að lausnum sem stuðla að sjálfbærni og betri framtíð fyrir okkur öll. Við leitum að frumkvöðlum, sprotafyrirtækjum og öðrum aðilum sem eru með hugmyndir eða verkefni sem styðja við umhverfismál, bæta umgengni við jörðina og skapa leiðir í átt að hringrásarhugsun. Við störfum um allt land og viljum styðja við verkefni í okkar nærumhverfi eða verkefnum sem hafa áhrif á samfélagið í heild,“ segir Erna.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Naut „stjaksetti“ einn frægasta nautabana Spánar á endaþarminum – Getur ekki sofið eða borðað

Naut „stjaksetti“ einn frægasta nautabana Spánar á endaþarminum – Getur ekki sofið eða borðað
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Ævintýri Tinna í dómsal – Belgískt félag stefndi Pennanum fyrir brot gegn höfundarrétti

Ævintýri Tinna í dómsal – Belgískt félag stefndi Pennanum fyrir brot gegn höfundarrétti