fbpx
Þriðjudagur 17.mars 2026
Pressan

Trump úthúðar „bandamönnum“ í NATO og segist enga hjálp þurfa lengur – „VIÐ ÞURFTUM HANA ALDREI!“

Pressan
Þriðjudaginn 17. mars 2026 16:23

Mynd/Getty

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Donald Trump Bandaríkjaforseti segir þjóð sína ekki þurfa nokkra hjálp í stríðinu við Íran. Hafi það ekki komið honum á óvart að flest NATO-ríki hafi neitað að aðstoða Bandaríkin enda hafi hann alltaf litið á bandalagið sem einstefnu götu þar sem Bandaríkin eru alltaf tilbúin að hjálpa en fá ekkert í staðinn. Þetta kemur fram í reiðilestri sem forsetinn birti á Truth Social fyrir skömmu.

„Flestir „bandamenn“ okkar í NATO hafa tilkynnt Bandaríkjunum að þeir vilji ekki taka þátt í hernaðaraðgerðum okkar gegn hryðjuverkastjórn Írans í Mið-Austurlöndum. Þetta er þrátt fyrir að nánast öll lönd hafi eindregið verið sammála því sem við erum að gera og um að Íran megi undir nokkrum kringumstæðum, á nokkurn hátt, eignast kjarnavopn. Ég er samt ekki hissa á viðbrögðum þeirra, því ég hef alltaf litið á NATO, þar sem við eyðum hundruðum milljarða dollara á ári í að vernda þessi sömu lönd, sem einstefnugötu – Við munum vernda þau, en þau gera ekkert fyrir okkur, sérstaklega ekki á neyðarstundu. Sem betur fer höfum við gereytt herafla Írans – Sjóher þeirra er farinn, flugher þeirra er farinn, loftvarnir þeirra og ratsjár eru farnar og kannski það sem mestu skiptir, leiðtogar þeirra, á nánast öllum stigum, eru farnir, og munu aldrei aftur ógna okkur, bandamönnum okkar í Mið-Austurlöndum, eða heiminum! Vegna þess hve miklum hernaðarlegum árangri við höfum náð, „þurfum“ við hvorki lengur, né óskum eftir, aðstoð NATO-ríkjanna  — VIÐ ÞURFTUM HANA ALDREI! Hið sama gildir um Japan, Ástralíu eða Suður-Kóreu. Reyndar, sem forseti Bandaríkja Norður-Ameríku, langöflugasta ríkis heims, ÞURFUM VIÐ EKKI HJÁLP FRÁ NEINUM! Þakka ykkur fyrir athyglina. DONALD J. TRUMP forseti.“

Frá upphafi hernaðaraðgerða Bandaríkjanna í Íran hefur Trump fullyrt að allt gangi þar vonum framar, og jafnvel fullyrt að sigur væri í höfn. Kom það því mörgum á óvart þegar hann fyrir nokkrum dögum óskaði eftir aðstoð NATO-ríkja við að fylgja olíuskipum í gegnum Hormússund, en Íran hefur hótað að sprengja upp öll skip sem sigla þar um. Virtist forsetinn hæfilega vongóður á sunnudaginn um að slík aðstoð myndi berast og hélt hann því fram að hann hefði fengið jákvæð viðbrögð. Á sunnudaginn greindu Ástralía og Japan frá því að þeir myndu ekki senda herskip í Homrússund. Það sama á við um Finna, Spán, Pólland, Frakkland og fleiri.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Í gær

Hlúði að „broddgelti“ alla nóttina – Komst að sannleikanum hjá dýralækninum

Hlúði að „broddgelti“ alla nóttina – Komst að sannleikanum hjá dýralækninum
Pressan
Í gær

Voru blekktir til að berjast fyrir Rússa en snúa nú heim

Voru blekktir til að berjast fyrir Rússa en snúa nú heim
Pressan
Fyrir 2 dögum

Þetta eru helstu ástæðurnar fyrir að myglusveppur nær að breiðast út

Þetta eru helstu ástæðurnar fyrir að myglusveppur nær að breiðast út
Pressan
Fyrir 2 dögum

Hreinsanir Xi Jinpin í hernum geta komið í bakið á honum

Hreinsanir Xi Jinpin í hernum geta komið í bakið á honum
Pressan
Fyrir 2 dögum

Stærsti kakóframleiðandi heims stendur frammi fyrir miklum vanda

Stærsti kakóframleiðandi heims stendur frammi fyrir miklum vanda
Pressan
Fyrir 2 dögum

Stal AirPods – Hefði betur sleppt því

Stal AirPods – Hefði betur sleppt því