fbpx
Þriðjudagur 17.mars 2026
Pressan

Ferðamenn á Suður-Tenerife skelfingu lostnir eftir að maður ógnaði þeim með byssu

Pressan
Þriðjudaginn 17. mars 2026 14:30

Myndin sýnir vopn sem lögregla fann í bíl parsins og haldlagði. Mynd: Policia Nacional.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Óþægilegt atvik átti sér stað seint í gærkvöld á götum úti í Suður-Tenerife. Tuttugu og níu ára gamall maður og 19 ára kona eru í haldi lögreglu vegna atviksins. Canarian Weekly greinir frá.

Atburðarásin hófst um klukkan hálfeitt eftir miðnætti er 19 ára stúlkan greip utan um ferðakonu aftan frá og hrifsaði af henni farsíma og úr. Nærstaddir vegfarendur komu ferðakonunni til hjálpar og yfirbuguðu stúlkuna í því skyni að endurheimta þýfið.

Félagi stúlkunnar, áðurnefndur 29 ára gamall maður, miðaði þá byssu á ferðamennina, og skipaði þeim að láta stúlkuna lausa. Hann lét ekki þar við sitja heldur skaut úr byssunni. Mikil skelfing greip um sig meðal ferðamannanna en síðar kom í ljós að byssan sem hann notaði var loftbyssa.

Skotmaðurinn flýði af vettvangi en var handtekinn skömmu síðar ásamt ungu konunni.

Við rannsókn lögreglu var lagt hald á nokkurt magn vopna sem fannst í bíl parsins. Þau verða leidd fyrir dómara í dag en bæði eru með brotaferil að baki.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Í gær

Hlúði að „broddgelti“ alla nóttina – Komst að sannleikanum hjá dýralækninum

Hlúði að „broddgelti“ alla nóttina – Komst að sannleikanum hjá dýralækninum
Pressan
Í gær

Voru blekktir til að berjast fyrir Rússa en snúa nú heim

Voru blekktir til að berjast fyrir Rússa en snúa nú heim
Pressan
Í gær

Þetta eru helstu ástæðurnar fyrir að myglusveppur nær að breiðast út

Þetta eru helstu ástæðurnar fyrir að myglusveppur nær að breiðast út
Pressan
Fyrir 2 dögum

Hreinsanir Xi Jinpin í hernum geta komið í bakið á honum

Hreinsanir Xi Jinpin í hernum geta komið í bakið á honum
Pressan
Fyrir 2 dögum

Stærsti kakóframleiðandi heims stendur frammi fyrir miklum vanda

Stærsti kakóframleiðandi heims stendur frammi fyrir miklum vanda
Pressan
Fyrir 2 dögum

Stal AirPods – Hefði betur sleppt því

Stal AirPods – Hefði betur sleppt því