fbpx
Miðvikudagur 18.mars 2026
Fréttir

Guðmundur Ingi snýr aftur í dag: „Ég er sannarlega til í tuskið“

Ritstjórn DV
Mánudaginn 16. mars 2026 08:00

Guðmundur Ingi Kristinsson

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Guðmundur Ingi Kristinsson, fyrrverandi ráðherra, er væntanlegur aftur til starfa á Alþingi í dag eftir að hafa gengist undir opna hjartaaðgerð í desember.

Guðmundur Ingi, sem gegndi stöðu mennta- og barnamálaráðherra, sagði af sér ráðherraembætti í byrjun janúar af heilsufarsástæðum. En hann heldur áfram sem þingmaður og er hvergi banginn eins og kemur fram í Morgunblaðinu í dag.

„Ég er í fínum málum eftir þetta allt saman, og sannarlega til í tuskið,“ segir hann í samtali við blaðið en hann hefur verið í endurhæfingu síðustu vikur sem hefur gengið vel. Til að byrja með verður hann þó ekki í fullu starfshlutfalli, eða fram að páskum að minnsta kosti.

Þegar Guðmundur sagði af sér í byrjun janúar kvaðst hann ætla að einbeita sér a því að ná bata og sagðist hann hlakka til að snúa aftur til starfa sem þingmaður. Guðmundur hefur verið þingmaður Flokks fólksins frá árinu 2017 og var hann formaður þingflokksins á árunum 2018 til 2025.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 22 klukkutímum

Dómsmálaráðuneytið sagði ekki upp samningi um íslenskupróf

Dómsmálaráðuneytið sagði ekki upp samningi um íslenskupróf
Fréttir
Fyrir 23 klukkutímum

Árásin í Túnunum vegna skuldauppgjörs

Árásin í Túnunum vegna skuldauppgjörs
Fréttir
Fyrir 2 dögum

„Þá hefur þú annars vegar hann, og hins vegar mig sem litla stúlku sem hafði ekki nokkurn möguleika á því að verjast“

„Þá hefur þú annars vegar hann, og hins vegar mig sem litla stúlku sem hafði ekki nokkurn möguleika á því að verjast“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Yfirmenn miðasölufyrirtækis gerðu grín að kaupendum sínum – „Þetta fólk er svo heimskt“

Yfirmenn miðasölufyrirtækis gerðu grín að kaupendum sínum – „Þetta fólk er svo heimskt“