fbpx
Fimmtudagur 12.mars 2026
Fréttir

Hagfræðingur segir álagningu íslensku olíufélaganna í hæstu hæðum – Ætti að vera 20 krónum lægra

Ritstjórn DV
Fimmtudaginn 12. mars 2026 12:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Vilhjálmur Hilmarsson er hagfræðingur Visku, stéttarfélags sérfræðinga, og birti hann í dag áhugaverða grein um eldsneytisverð. Þar kemur fram að íslensku olíufélögin séu nær fjórfalt líklegri til að skila verðhækkunum til neytenda en verðlækkunum og að álagning á bensín hafi undanfarið verið sögulega há.

„Eldsneytisverð gæti verið um 20 krónum lægra ef olíufélögin færðu álagningu að langtímameðaltalinu. Viska hvetur stjórnvöld til að þrýsta á olíufélögin til að hlífa almenningi frá áhrifum Íransstríðsins með lægri álagningu.“

Greining hagfræðingsins sýnir hvernig álagning á hvern bensínlítra hafi aukist verulega undanfarin 5 ár og hafi svo náð sögulegum hæðum fyrstu tvo mánuði þessa árs.

„Eldsneytisverð á Íslandi er einfaldlega miklu hærra en það þarf að vera vegna fákeppninnar sem einkennir íslenska markaðinn.“

Fyrstu tölur bendi til þess að Íransstríðið hafi leitt til 40 prósenta hækkunar á heimsmarkaðsverði olíu og svo virðist sem íslensku olíufélögin hafi nú þegar velt hluta þeirrar hækkunar í verðlagið. Ef félögin skila allri hækkuninni í verðlag muni það líklega leiða til verðbólguþrýstings upp á 0,7 prósent til skamms tíma en mun meiri verðbólgu til lengri tíma. Olíufélögin séu þó í þeirri stöðu að geta hlíft heimilum landsins við stórum hluta þessara áhrifa stríðsins með því að lækka álagningu sína niður í langtímameðaltal. Verði álagning lækkuð um 20 krónur gæti það létt verðbólguþrýstinginn vegna stríðsins enn sem komið er.

Hagfræðingurinn rekur að á árunum 2022-2025 hafi olíufélögin verið nær fjórfalt líklegri til að skila verðhækkunum á heimsmörkuðum í bensínverðið en verðlækkunum. Fylgni verðhækkana á heimsmarkaði við verðhækkanir á dælu mældist rúmlega 90 prósent á tímabilinu en fylgi verðlækkana var aðeins um 24 prósent. Fylgni verðlækkana hafi farið sífellt minnkandi síðustu ár en fylgi hækkana aukist verulega. Á árunum 2014-2017 var þessu öfugt farið sem líklega má rekja til innreiðar Costco á eldsneytismarkað.

Sterkar vísbendingar eru um að afnám vörugjalda og olíugjalda um áramótin hafi ekki skilað sér að fullu í verðlag á dælu og að félögin séu smám saman að hækka álagningu sína.

Viska minnir á að allt bendi til þess að kjarasamningar losni í haust vegna verðbólguþrýstings og að heimilin megi ekki við meiri verðbólgu, síst í samgöngukostnaði sem nú þegar sé við þolmörk.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 6 klukkutímum

Ísland ætlar að taka þátt í máli Suður-Afríku gegn Ísrael

Ísland ætlar að taka þátt í máli Suður-Afríku gegn Ísrael
Fréttir
Fyrir 7 klukkutímum

Hildur segir útskýringar Kjartans og Mörtu fyrirslátt: „Einhverjir ákváðu að bregðast öðru vísi við og það er leitt”

Hildur segir útskýringar Kjartans og Mörtu fyrirslátt: „Einhverjir ákváðu að bregðast öðru vísi við og það er leitt”
Fréttir
Fyrir 20 klukkutímum

Kleini lýsir yfir sakleysi

Kleini lýsir yfir sakleysi
Fréttir
Fyrir 20 klukkutímum

Svíi sem grunaður er um að hafa tekið þátt í að kveikja í bíl lögreglukonu stefndi íslenska ríkinu

Svíi sem grunaður er um að hafa tekið þátt í að kveikja í bíl lögreglukonu stefndi íslenska ríkinu
Fréttir
Í gær

Krabbameinssjúklingi synjað um bætur – Segist vera lömuð eftir meðferðina

Krabbameinssjúklingi synjað um bætur – Segist vera lömuð eftir meðferðina
Fréttir
Í gær

Harðri flokkunarkeppni lokið hjá Krónunni – Borgartún með 93,3%

Harðri flokkunarkeppni lokið hjá Krónunni – Borgartún með 93,3%