fbpx
Miðvikudagur 11.mars 2026
Fréttir

Áhrifavaldur í hrakningum á Íslandi – Þurfti að sofa í fjárhúsi – „Heimskulegasta hugmynd mánaðarins“

Kristinn H. Guðnason
Miðvikudaginn 11. mars 2026 16:00

Nöturleg var svefnaðstaðan. Skjáskot/Youtube

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Erlendur áhrifavaldur ákvað að ögra skynseminni og hjóla hringinn í kringum Ísland um miðjan vetur. Á Norðurlandi lenti hann í hrakningum og þurfti að sofa í fjárhúsi.

Áhrifavaldurinn, sem kallar sig Erat11, lýsti reynslunni í myndbandi á Youtube undir yfirskriftinni „Heimskulegasta hugmynd mánaðarins.“

„Frá því að ég heyrði fyrst um Ísland langaði mig til þess að heimsækja það,“ sagði Erat. „En ekki á hinn hefðbundna hátt, á bak við rúðu í bílaleigubíl. Mig langaði til þess að vera þarna úti, að finna vindinn, þefa af saltinu í loftinu, og fara hægt í gegnum landslagið, draga það inn í mig. Svo ég ákvað að hjóla hringveginn.“

Hefði átt að hlusta

Fór hann að lesa sér til um landið og sá að umferðin er mjög mikil yfir sumarmánuðina. Hún var minni í desember og þá ákvað hann að halda í reisu sína. Færri bílar, rólegri vegir, en reyndar verra veður.

Spurðist hann fyrir á samfélagsmiðlinum Reddit hvort það væri góð hugmynd að gera þetta og svarið var einróma neikvætt. Hann væri ekki aðeins að koma sjálfum sér í hættu heldur einnig öðrum á veginum. Engu að síður lét hann slag standa. „Kannski hefði ég átt að hlusta,“ sagði Erat.

Gekk vel framan af

Til að byrja með gekk ferðalagið furðulega vel. Það var lítil umferð, heiður himinn, fallegt og friðsælt landslag.

En þegar hann nálgaðist Akureyri versnaði veðrið. Mótvindurinn var mikill, snjókoma og rigning jókst og það hægðist verulega á hjólreiðamanninum.

Þegar hann kom að Mývatni eyðilagðist glænýtt tjald sem hann hafði keypt. Hann hafði ekkert skjól.

Stormur í nánd og ónýtt tjald

Það var langt til Egilsstaða, um 200 kílómetra leið, en hann ákvað að reyna að komast þangað til þess að gera við tjaldið. Samkvæmt veðurspánni var von á stormi eftir tvo daga. En hann kom fyrr.

„Ég var þarna uppi á hálendinu, með ekkert tjald og margra kílómetra snæviþakta eyðimörk á milli mín og áfangastaðar míns,“ sagði Erat. Hann var í vonlausri stöðu.

Þá rakst hann á veitingastað og starfsfólkið þar benti honum á sveitabæ rétt hjá þar sem hann gæti fengið að leigja herbergi.

Enginn heima

Hann kom að bænum um sólsetur og sá ljós í gluggunum. En það var enginn þar nema tveir vinalegir hundar og feimið hreindýr.

Hurðirnar voru læstar og veðrið var að versna til muna. Skafrenningur var mikill og stormurinn var augljóslega á leiðinni.

„Þegar ég gekk á milli bygginganna fann ég lítið fjárhús,“ sagði Erat. „Algjörlega örmagna, lagði ég dýnuna mína á heyið og sofnaði.“

Daginn eftir fann heimafólkið hinn hrakta Erat í fjárhúsinu. En honum var vel tekið og fékk að gista þar næstu nótt. Hann gerði við tjaldið sitt og hélt svo áfram sína leið. Hann kláraði hringveginn í kringum Ísland á 21 degi.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 5 klukkutímum

Krabbameinssjúklingi synjað um bætur – Segist vera lömuð eftir meðferðina

Krabbameinssjúklingi synjað um bætur – Segist vera lömuð eftir meðferðina
Fréttir
Fyrir 5 klukkutímum

Harðri flokkunarkeppni lokið hjá Krónunni – Borgartún með 93,3%

Harðri flokkunarkeppni lokið hjá Krónunni – Borgartún með 93,3%
Fréttir
Fyrir 7 klukkutímum

Margt athyglisvert á nýjum lista Forbes yfir þá ríkustu í heimi

Margt athyglisvert á nýjum lista Forbes yfir þá ríkustu í heimi
Fréttir
Fyrir 8 klukkutímum

Andri lætur Þorstein finna fyrir því: Leist ekki illa á hann „fyrr en hann fór í þetta prinsaviðtal“

Andri lætur Þorstein finna fyrir því: Leist ekki illa á hann „fyrr en hann fór í þetta prinsaviðtal“
Fréttir
Í gær

Reyndi að taka á móti stórri kókaínsendingu á heimili sínu

Reyndi að taka á móti stórri kókaínsendingu á heimili sínu
Fréttir
Í gær

Dagur segir Miðflokkinn þurfa að gera hreint fyrir sínum dyrum vegna frétta um tengsl við MAGA hreyfinguna

Dagur segir Miðflokkinn þurfa að gera hreint fyrir sínum dyrum vegna frétta um tengsl við MAGA hreyfinguna