

Fjallað er um þetta í Morgunblaðinu í dag og rætt við Boga.
Staða Icelandair hefur verið töluvert til umræðu síðustu daga og hefur því verið velt upp hvort hætta sé á yfirtöku félagsins þar sem það er vanmetið á hlutabréfamarkaði. Eyjólfur kvaðst hafa miklar áhyggjur af stöðu Icelandair og að erlendir fjárfestar myndu nýta sér lágt hlutabréfaverð til að taka félagið yfir.
Sjá einnig: Haukur lýsir áhyggjum sínum: „Enginn einn atburður myndi kosta þjóðina meira“
Bogi segist í viðtali við Morgunblaðið hafa gert athugasemdir við þær staðhæfingar sem birtust í umfjölluninni. Bendir hann á að árið hafi farið vel af stað hjá Icelandair og fjárhagsstaðan sé sterk.
Bogi segir að í samtali hans við ráðherra hafi komið fram að Eyjólfur hafi verið að tala út frá stóru myndinni í samhengi við samkeppnishæfni útflutningsfyrirtækja á Íslandi.
„En almennt séð tel ég að ráðherrar og aðrir í sambærilegum stöðum eigi að tjá sig mjög varlega um skráð félög á markaði,“ segir Bogi við Morgunblaðið.