fbpx
Mánudagur 09.mars 2026
Fréttir

Segir barn sitt hafa verið beitt mismunun í skólanum vegna uppruna síns

Jakob Snævar Ólafsson
Mánudaginn 9. mars 2026 13:00

Foreldrinu var bent á að leita til mennta- og barnamálaráðuneytisins. Mynd: Skjáskot/Já.is.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Umboðsmaður Alþingis hefur lokið meðferð sinni á kvörtun sem foreldri lagði fram vegna barns síns. Vildi foreldrið meina að barnið hefði verið beitt mismunun af hálfu grunnskólans þar sem það stundaði nám en ekki kemur fram hver skólinn er eða í hvaða sveitarfélagi hann er. Vísaði foreldrið til þess að niðurröðun barnsins í bekk og kennslan sem það fékk á grundvelli þess hafi falið í sér mismunun á grundvelli uppruna. Fór svo að foreldrið tók barnið úr viðkomandi skóla.

Kvörtunin var lögð fram í maí síðastliðnum en bréf umboðsmanns til foreldrisins með niðurstöðu málsins var sent í lok febrúar síðastliðins.

Í bréfinu segir að af kvörtuninni verði ráðið að hún lúti einkum að ákvörðun skólayfirvalda í sveitarfélaginu um niðurröðun nemenda, þar með talið barnsins, í umsjónarbekk í skólanum. Í kvörtuninni séu gerðar athugasemdir við niðurröðunina á þeim forsendum að hún hafi falið í sér mismunun á grundvelli uppruna. Í kvörtuninni séu einnig gerðar athugasemdir við inntak þeirrar kennslu sem barnið fékk af framangreindum sökum.

Segir enn fremur að komið hafi fram í samskiptum foreldrisins við starfmann umboðsmanns, eftir að kvörtunin barst, að foreldrið hefði átt fund með skólayfirvöldum vegna málsins um miðjan maí 2025. Þar hefði foreldrið óskað eftir skriflegum svörum vegna erindisins en þau höfðu þá ekki borist. Í fylgigögnum með kvörtuninni hafi jafnframt komið fram að erindi vegna málsins hefði verið beint til sveitarfélagsins en engin svör hefðu borist.

Hætt og lítið hægt að gera

Umboðsmaður óskaði eftir upplýsingum frá viðkomandi sveitarfélagi. Svar barst frá sveitarfélaginu í ágúst 2025.  Þar kom meðal annars fram að skólinn hefði boðað foreldra barnsins á fund um málið. Í kjölfar fundarins hefði það foreldri sem lagði kvörtunina fram lýst yfir óánægju sinni með stöðuna og boðað að barnið myndi hætta í skólanum. Af þeim sökum hefði skólinn lítið getað brugðist við óánægju foreldra um þjónustu skólans.

Segir enn fremur í bréfinu að í samtölum starfsmanns umboðsmanns við starfsmann sveitarfélagsins hafi komið fram, að því er varðaði erindið sem beint hefði verið til sveitarfélagsins, að það hefði enn verið í vinnslu hjá bænum þegar foreldrið upplýsti að til stæði að taka barnið úr skólanum. Í ljósi þeirra upplýsinga hefði hins vegar verið litið svo á að málinu væri lokið af hálfu bæjarins og ekki stæði til að bregðast frekar við erindinu. Í samskiptum foreldrisins við starfsmann umboðsmanns hafi síðan verið staðfest að barnið stundi ekki lengur nám við umræddan skóla.

Það kemur hins vegar ekkert fram í bréfi umboðsmanns hvaða ráðstafanir voru gerðar varðandi skólagöngu barnsins.

Svör

Umboðsmaður spurði sveitarfélagið í kjölfarið hvort virkilega stæði til að svara ekki erindum foreldrisins. Sveitarfélagið upplýsti að svar hefði verið sent. Í ljósi þessa taldi umboðsmaður ekki tilefni til aðhafast frekar varðandi þann lið kvörtunarinnar er sneri að skorti á svörum frá sveitarfélaginu.

Hvað varðar kvörtun foreldrisins yfir niðurröðun barnsins í umsjónarbekk og kennslunnar sem það hlaut vegna þessa segir umboðsmaður ljóst að samkvæmt lögum geti embættið almennt ekki tekið kvartanir fyrir fyrr en meðferð þeirra sé lokið hjá stjórnvöldum.

Bendir umboðsmaður á að samkvæmt lögum um grunnskóla fari mennta- og barnamálaráðherra með yfirstjórn þeirra málefna sem lögin taki til og hafi hann meðal annars eftirlit með gæðum skólastarfs. Hafi mennta- og barnamálaráðuneytið auk þess eftirlit með því að sveitarfélög uppfylli þær skyldur ssem lögin, reglugerðir og reglur settar samkvæmt þeim og aðalnámskrá grunnskóla kveði á um.

Telur umboðsmaður því rétt að foreldrið freisti þess að bera athugasemdir vegna skipulags og inntaks kennslunnar í skólanum undir mennta- og barnamálaráðherra áður en málið geti komið til nánari athugunar af hálfu umboðsmanns. Ráðherra og ráðuneyti hans geti í kjölfarið, á grundvelli yfirstjórnunar- og eftirlitsheimilda sinna, gert ráðstafanir sem miði að því að koma málum í lögmætt horf, telji það tilefni til.

Lætur umboðsmaður því málinu lokið af sinni hálfu en minnir foreldrið á að lokum að sé það enn óánægt eftir að ráðuneytið hafi lokið sinni meðferð á málinu sé hægt að leita til embættisins að nýju.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 3 dögum

Borgarlínan klýfur Sjálfstæðisflokkinn í borginni

Borgarlínan klýfur Sjálfstæðisflokkinn í borginni
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Arnar Helgi telur greiðslu fyrir p-stæði bæta aðgengi – „Fjárhagslegt hagsmunamál“

Arnar Helgi telur greiðslu fyrir p-stæði bæta aðgengi – „Fjárhagslegt hagsmunamál“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Íslenskir fjárhundar í alvarlegu dýraníðsmáli – „Við viljum fá þessi dýr sem er verið að fara illa með og koma þeim á ástrík heimili“

Íslenskir fjárhundar í alvarlegu dýraníðsmáli – „Við viljum fá þessi dýr sem er verið að fara illa með og koma þeim á ástrík heimili“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Þetta er sú stofnun sem Íslendingar bera mest traust til

Þetta er sú stofnun sem Íslendingar bera mest traust til