fbpx
Laugardagur 02.maí 2026
Fréttir

Guðrún mjög ósátt eftir tíðindi dagsins

Ritstjórn DV
Föstudaginn 6. mars 2026 12:59

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Guðrún Hafsteinsdóttir, formaður Sjálfstæðisflokksins, er allt annað en sátt við tíðindi dagsins en eins og komið hefur fram hefur ríkisstjórnin boðað til þjóðaratkvæðagreiðslu um framhald á aðildarviðræðum Íslands að ESB þann 29. ágúst næstkomandi.

Guðrún ræddi málið í fréttum RÚV í hádeginu þar sem hún gagnrýndi forgangsröðun ríkisstjórnarinnar.

„Þetta sýnir í raun raunverulega forgangsröðun ríkisstjórnarinnar, hún talar eins og hún hafi skýrt umboð til að fara af stað í þessa vegferð en ég er alls ekki sammála því. Ég tel að það sé ekki meirihluti fyrir þessari þingsályktun á Alþingi Íslendinga í raun og það er auðvitað fáheyrt og án fordæma að einhver þjóð eða þjóðþing ætli af stað í svona vegferð þegar það er ekki meirihluti fyrir því á þinginu,“ sagði hún.

Guðrún sagðist ekki sjá betur en að nú eigi að „dreifa athygli þjóðarinnar“ og vill meina að ríkisstjórnin sé ekki með augun á boltanum í verkefnunum sem eru fyrir hendi hér heima.

„Hér er verðbólga, ríkisstjórnin hefur ekki náð henni niður, ekki vöxtunum og atvinnuleysi hækkar og hækkar og er nú 7,5%. Ríkisstjórnin er ekki að einbeita sér að þessum mikilvægu efnahagsmálum heldur er hún í einhverjum ævintýrum í Brussel þar sem brýnir hagsmunir þjóðarinnar eru einfaldlega ekki hafðir að leiðarljósi. Nú á að fara eyða dýrmætum tíma í verkefni sem engin þörf er á að keyra í gegn á þessum hraða sem nú á að gera. Tímasetningin fyrir mér er ekki valin með hagsmuni þjóðarinnar að leiðarljósi heldur hagsmuni þessarar ríkisstjórnarinnar.“

Guðrún sagðist ekki óttast afstöðu þjóðarinnar en vill að hún hafi svigrúm til að taka upplýsta ákvörðun. Benti hún á að sveitastjórnarkosningar væru fram undan í maí og naumur tími til stefnu.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Naut „stjaksetti“ einn frægasta nautabana Spánar á endaþarminum – Getur ekki sofið eða borðað

Naut „stjaksetti“ einn frægasta nautabana Spánar á endaþarminum – Getur ekki sofið eða borðað
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Ævintýri Tinna í dómsal – Belgískt félag stefndi Pennanum fyrir brot gegn höfundarrétti

Ævintýri Tinna í dómsal – Belgískt félag stefndi Pennanum fyrir brot gegn höfundarrétti