fbpx
Mánudagur 09.mars 2026
Fréttir

Gufunesmálið: Verjendur vildu vita hvort endurlífgun á Hjörleifi hefði verið rétt framkvæmd

Ágúst Borgþór Sverrisson
Fimmtudaginn 5. mars 2026 16:30

Verjendurnir, frá vinstri: Stefán Karl Kristjánsson, Páll Kristjánsson og Sævar Þór Jónsson.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Ný matsgerð í Gufunesmálinu, sem varðar morð þriggja manna á Hjörleifi Hauki Guðmundssyni, 65 ára manni frá Þorlákshöfn, liggur nú fyrir. Samkvæmt heimildum DV útilokar niðurstaða matsgerðarinnar að mistök hafi orðið við endurlífgun á Hjörleifi en dregur fram atriði sem gætu haft verulega þýðingu fyrir vörn ákærðu.

Sjá einnig: Dómur fallinn í Gufunesmálinu – Þrír fá þunga refsingu

Í héraðsdómi voru þeir Stefán Blackburn og Lúkas Geir Ingvarsson dæmdir í 17 ára fangelsi fyrir morðið en Matthías Björn Erlingsson í 14 ára fangelsi.

Málið var nýlega tekið fyrir í Landsrétti. Verjendur þeirra Stefáns Blackburn, Páll Kristjánsson hæstaréttarlögmaður, og Lúkasar, Stefán Karl Kristjánsson hæstaréttarlögmaður, fóru fram á matsgerðina. Verjandi Matthísar Björns er hæstaréttarlögmaðurinn Sævar Þór Jónsson.

Meginniðurstaða matsgerðarinnar er skýr hvað varðar bráðaviðbrögð á vettvangi: Ekkert bendir til þess að mistök hafi verið gerð þegar reynt var að endurlífga Hjörleif heitinn. Hins vegar vekur matsgerðin athygli á öðrum þáttum sem gætu verið matskenndir. Samkvæmt heimildum eru þar atriði sem verjendur telja að geti varpað nýju ljósi á atburðarásina og hugsanlega haft áhrif á sakarmat eða refsiákvörðun.

Allir verjendurnir þrír beindu fjölmörgum spurningum til matsmanna til að varpa ljósi á læknisfræðileg atriði og orsakasamhengi áverkanna.

Aðalmeðferð fyrir Landsrétti verður dagana 15.-17. apríl. Þar munu matsmenn mæta fyrir dóm og skýra niðurstöður sínar nánar, auk þess sem skýrslutökur yfir ákærðu og vitnum munu fara fram.

Búast má við að Landsréttur felli sinn dóm í málinu fyrir miðjan maí. Gufunesmálið er eitt þekktasta sakamál síðari ára og forvitnilegt verður að vita hvort niðurstaða Landsréttar verður í samræmi við dóminn í héraði, eða t.d. hvort refsing yfir sakborningum verður þyngd eða milduð.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 12 klukkutímum

Öðlaðist aftur trú á samfélagið þegar hann varð vitni að atviki á Arnarnesbrú

Öðlaðist aftur trú á samfélagið þegar hann varð vitni að atviki á Arnarnesbrú
Fréttir
Fyrir 12 klukkutímum

Minnist frægs föður síns með hjartnæmri færslu – „Hann finnur ekki fyrir sársauka lengur“

Minnist frægs föður síns með hjartnæmri færslu – „Hann finnur ekki fyrir sársauka lengur“
Fréttir
Í gær

Sigurður Ingólfsson er látinn

Sigurður Ingólfsson er látinn
Fréttir
Í gær

Fær að halda hundunum sínum eftir að bæjaryfirvöld á Akranesi gengu of langt

Fær að halda hundunum sínum eftir að bæjaryfirvöld á Akranesi gengu of langt
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Varað við eldingum á Höfuðborgarsvæðinu og Suðurlandi

Varað við eldingum á Höfuðborgarsvæðinu og Suðurlandi
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Fimmtán milljónum stolið af bargesti í Reykjavík eftir að þokkafull kona hafði tælt hann

Fimmtán milljónum stolið af bargesti í Reykjavík eftir að þokkafull kona hafði tælt hann
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Íslenskir fjárhundar í alvarlegu dýraníðsmáli – „Við viljum fá þessi dýr sem er verið að fara illa með og koma þeim á ástrík heimili“

Íslenskir fjárhundar í alvarlegu dýraníðsmáli – „Við viljum fá þessi dýr sem er verið að fara illa með og koma þeim á ástrík heimili“