fbpx
Þriðjudagur 03.mars 2026
433Sport

Misskilningur í heimahúsi leiddi til lífshættulegra aðstæðna – Eiginkonan stakk mann sinn og kastaði í hann skærum

433
Þriðjudaginn 3. mars 2026 11:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Stuðningsmaður Napoli var að sögn stunginn af eiginkonu sinni eftir að misskilningur kom upp þegar hann horfði á leik liðsins gegn Atalanta í Serie A.

Hinn 40 ára gamali maður varð æfur þegar vítaspyrna Napoli var dæmd af eftir inngrip VAR í 2-1 tapi gegn Atalanta. Hann mun hafa öskrað að sjónvarpinu, en eiginkona hans taldi að orð hans beindust að sér og upp hófst heiftarlegt rifrildi.

Í kjölfarið á konan, sem er 35 ára gömul, að hafa kastað skærum að manninum og síðan gripið hníf og stungið hann í vinstri hliðina. Hún á einnig að hafa kastað fleiri hnífum áður en hann náði að hringja á neyðarlínu.

Lögreglan í Capodimonte handtók konuna á staðnum vegna heimilisofbeldis og líkamsárásar. Maðurinn var fluttur á Ospedale del Mare-sjúkrahúsið þar sem staðfest var að líf hans væri ekki í hættu.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 21 klukkutímum

Víkingur staðfestir komu Jóa Bjarna

Víkingur staðfestir komu Jóa Bjarna
433Sport
Fyrir 22 klukkutímum

Hvetur Chelsea til að kaupa fyrrum leikmann Liverpool

Hvetur Chelsea til að kaupa fyrrum leikmann Liverpool
433Sport
Fyrir 23 klukkutímum

Tóku Jóa Kalla og Hafnfirðinga til bæna vegna uppákomunnar á föstudag: „Hann gat ekki sætt sig við að Fylkismenn myndu ekki láta hann bully-a sig“

Tóku Jóa Kalla og Hafnfirðinga til bæna vegna uppákomunnar á föstudag: „Hann gat ekki sætt sig við að Fylkismenn myndu ekki láta hann bully-a sig“
433Sport
Í gær

Íslenska liðið undirbýr sig af kappi á Spáni – Risastór vika framundan

Íslenska liðið undirbýr sig af kappi á Spáni – Risastór vika framundan
433Sport
Í gær

Útlit fyrir slag Manchester-liðanna um fokdýran miðjumann

Útlit fyrir slag Manchester-liðanna um fokdýran miðjumann