
Fyrrum leikmaður Manchester United, Lee Sharpe, segir félagið geta selt Bruno Fernandes þrátt fyrir mikilvægi hans fyrir liðið.
Fernandes, sem kom frá Sporting árið 2020, hefur verið lykilmaður á Old Trafford og er nú fyrirliði liðsins. Hann hefur skorað sjö mörk og lagt upp 13 á tímabilinu og komið að meira en 200 mörkum í heildina á ferli sínum hjá félaginu.
Portúgalinn hefur þó áður verið oraðaður við brottför og viðurkenndi að það hefði sært sig að United hafi verið opið fyrir því að selja hann til Sádi-Arabíu í fyrra.
Sharpe telur að alls ekki megi útiloka sölu í sumar. „Þú getur leyft hverjum sem er að fara. Félagið mun samt halda áfram. Sala á Bruno gæti gefið svigrúm til að kaupa nýjan lykilleikmann,“ sagði hann, en bætti við að stuðningsmenn vildu halda honum.
Fernandes er 31 árs og samningsbundinn til 2027.