fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
433Sport

Sonur goðsagnar í bobba – Ákærður fyrir óviðeigandi hegðun

Helgi Fannar Sigurðsson
Fimmtudaginn 26. febrúar 2026 18:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Alex Bruce, sonur Steve Bruce, hefur verið kærður af enska knattspyrnusambandinu fyrir meinta óviðeigandi framkomu í garð dómara.

Bruce starfar sem aðstoðarþjálfari hjá Salford City og atvikið átti sér stað eftir 3-2 tap gegn Cheltenham í febrúar.

Samkvæmt enska knattspyrnusambandinu er hann sakaður um að hafa hegðað sér á óviðeigandi hátt og/eða notað móðgandi orð í garð dómara eftir leikinn.

Leikmaðurinn Luke Garbutt hefur einnig verið kærður. Hann er sakaður um sömu brot auk þess að hafa ekki yfirgefið svæðið tafarlaust.

Salford, sem er meðal annars í eigu Gary Neville og David Beckham, hefur tapað fimm leikjum í röð og misst dampinn í baráttunni um umspilssæti í C-deildinni.

Bruce og Garbutt hafa frest til 2. mars til að svara kærunum.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 8 klukkutímum

Íslenska liðið undirbýr sig af kappi á Spáni – Risastór vika framundan

Íslenska liðið undirbýr sig af kappi á Spáni – Risastór vika framundan
433Sport
Fyrir 8 klukkutímum

Útlit fyrir slag Manchester-liðanna um fokdýran miðjumann

Útlit fyrir slag Manchester-liðanna um fokdýran miðjumann
433Sport
Fyrir 2 dögum

Kom með áhugaverða spá fyrir sumarið – „Það er engin sérstök lógík á bak við það“

Kom með áhugaverða spá fyrir sumarið – „Það er engin sérstök lógík á bak við það“
433Sport
Fyrir 2 dögum

Útilokar ekki að taka við Tottenham í sumar

Útilokar ekki að taka við Tottenham í sumar
433Sport
Fyrir 2 dögum

Moyes kallar eftir því að tekið verið á skítabrögðum eftir umræðuna

Moyes kallar eftir því að tekið verið á skítabrögðum eftir umræðuna
Sport
Fyrir 2 dögum

Trúir ekki öðru en að þetta gjörbreytist í Vesturbænum

Trúir ekki öðru en að þetta gjörbreytist í Vesturbænum