fbpx
Fimmtudagur 26.febrúar 2026
Fréttir

Hvalveiðiskipstjóri varð af 20 milljónum

Jakob Snævar Ólafsson
Fimmtudaginn 26. febrúar 2026 14:06

Myndin er úr safni.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Starfsmaður Hvals h.f. tapaði máli sem hann höfðaði gegn fyrirtækinu. Krafðist hann 19,4 milljóna króna í  vangoldin laun auk dráttarvaxta. Er krafan tilkomin vegna hvalveiðivertíðarinnar 2023 sem var stytt töluvert þegar veiðar voru bannaðar tímabundið með skömmum fyrirvara og starfsmenn fengu því aldrei þau laun sem þeir væntu þess að fá fyrir störf sín við veiðarnar. Höfðu fleiri starfsmenn höfðað mál af sömu ástæðu og var það gert í samvinnu við fyrirtækið.

Dómurinn er sá síðasti af sex sem kveðnir eru upp af Héraðsdómi Vesturlands í þessum málum. Í tveimur málum fengu tveir fyrrverandi starfsmenn dæmdar 2,1 milljón króna en í hinum þremur var fyrirtækið sýknað.

Er málareksturinn tilkominn vegna þess að ekkert varð af megninu af hvalveiðivertíð Hvals 2023 eftir að Svandís Svavarsdóttir þáverandi matvælaráðherra bannaði veiðarnar tímabundið. Umboðsmaður Alþingis komst að þeirri niðurstöðu að ráðherrann hefði ekki farið að lögum. Hvalur hefur höfðað mál á hendur ríkinu og krafist bóta en endanleg bótakrafa mun að sögn ráðast af niðurstöðu dómsmála starfsmannanna á hendur fyrirtækinu en hvort krafan mun lækka í ljósi þess að Hvalur vann meirihluta málanna er óljóst.

Skipstjóri

Þetta sjötta dómsmál starfsmanns á hendur fyrirtækinu var höfðað af starfsmanni sem á langan starfsaldur að baki hjá Hval. Hann hefur starfað sem skipstjóri á öllum hvalveiðivertíðum fyrirtækisins síðan árið 1972. Síðan árið 2022 hefur hann verið fastráðinn starfsmaður og starfað í landvinnu fyrir fyrirtækið þegar hvalveiðivertíðir standa ekki yfir en hins vegar hafa starfsmaðurinn og fyrirtækið gert með sér sérstakan ráðningarsamning vegna hvalveiðivertíða en á meðan þær standa yfir fær hann greidd föst mánaðarlaun skipstjóra á vertíð.

Fyrirtækið og starfsmanninn greindi hins vegar á um hvort komist hefði á sérstakur ráðningarsamningur vegna hvalveiðivertíðarinnar 2023.

Í kjölfar þess að veiðarnar voru bannaðar um sumarið var starfsmanninum sem og öðrum skipverjum á hvalveiðiskipum Hvals tilkynnt að þeir myndu halda störfum sínum en ekki væri hægt að bjóða þeim jafn góð kjör og staðið hafi til. Veiðarnar voru hins vegar leyfðar aftur í september og stóð vertíðin í um þrjár vikur, til loka mánaðarins, og fékk starfsmaðurinn þá greitt hluta umsaminna launa fyrir vertíð en hann krafðist fullrar greiðslu.

Munnlegt

Starfsmaðurinn hélt því fram í stefnu sinni að ráðningarsamningurinn vegna vertíðarinnar 2023 hefði verið munnlegur og væri því fullgildur samkvæmt íslensku réttarfari.

Sagði starfsmaðurinn að báðir aðilar hafi gert ráð fyrir að á endanum yrði gerður skriflegur samningur en þrátt fyrir að það hafi ekki verið frágengið hafi samt sem áður verið til staðar ráðningarsamband. Samingurinn hafi átt að gilda frá júní 2023 og fram í lok september það ár en hann aðeins fengið greitt fyrir síðasta mánuðinn. Hvalur hafi ekki haft heimild til að breyta þessu einhliða þrátt fyrir bann matvælaráðherra og vísan fyrirtækisins til þess að forsendur hefðu brostið.

Byggði starfsmaðurinn launakröfu sína á því að hann hafi átt að fá alls 31,8 milljónir króna fyrir vertíðina en aðeins fengið 12,4 miljónir fyrir þann hluta hennar sem veiðar voru leyfðar og krafðist því að fá það sem eftir stóð.

Enginn samningur

Hvalur hafnaði því hins vegar alfarið að gerður hefði verið munnlegur ráðningarsamningur við starfsmanninn vegna hvalveiðivertíðarinnar 2023. Það hefði verið skilyrði fyrir því að slíkur samningur yrði gerður að af veiðunum yrði og það hafi til að mynda verið raunin 2022 en þá hafi samningurinn tekið gildi þegar haldið var til veiða en þegar veiðarnar hafi verið bannaðar 2023 hafi hvalveiðiskipið sem starfsmaðurinn átti að vera skipstjóri á verið enn við bryggju.

Vegna bannsins hafi fyrirtækið orðið fyrir tekjutapi sem endurskoðunarfyrirtækið Deloitte meti á einn milljarð króna og tjónið myndi rúmlega tvöfaldast ef allir starfsmenn ættu að fá greidd full laun fyrir vertíðina. Um hafi verið að ræða ófyrirséð ytri atvik og skilyrðum samningaréttar um brostnar forsendur hafi verið fullnægt. Forsenda samnings við starfsmanninn og þess að hann fengi greidd full laun væri að veiðarnar hefðu farið fram alla vertíðina en ekki bara síðustu þrjár vikurnar.

Engin laun fyrir engar veiðar

Héraðsdómur Vesturlands segir í sinni niðurstöðu það vera ljóst að í aðdraganda bannsins hafi ekkert bent til að af því yrði. Hvalur h.f. og starfsmenn fyrirtækisins hafi því mátt vænta þess allt til síðasta dags að af veiðunum yrði. Fyrirtækið hafi verið í góðri trú þegar það hafi ráðið mannskap fyrir vertíðina og það sé ekki hægt að líta svo á að forsenda ráðningar af hálfu Hvals hafi verið sú að raunverulega yrði af vertíðinni. Líta verði svo á að ráðningarsamband hafi komist á þegar tilboð um nokkuð skilgreinda atvinnu hafi verið samþykkt og þar gildi munnlegur samningur jafn mikið og skriflegur. Þá hafi sá sem ráðinn er öðlast sín réttindi.

Dómurinn segir hins vegar mál þessa starfsmanns og annarra skipverja á skipum félagsins vera þess eðlis að skipstjórum og öðrum skipverjum hafi verið gert að skrifa undir ráðningarsamning þar sem beinlínis hafi verið ákvæði um forsendur þess að til framkvæmdar á þeim samningi kæmi. Starfsmaðurinn hafi því ekki getað vænst þess að fá full laun fyrir vertíðina eins og hann hafi krafist.

Þótt ráðningarsamband við starfsmanninn vegna vertíðarinnar 2023 hafi verið til staðar, sem hefði tryggt honum mun hærri laun en fyrir hans föstu störf hjá fyrirtækinu, hafi á grundvelli fyrri samninga við hann og forsenda, sem starfsmanninum hafi verið að fullu ljósar, hafi ekki komið til  framkvæmdar á ráðningarsamningi vegna hvalveiðivertíðarinnar. Því komi ekki til þess að samningnum hafi verið sagt upp heldur hafi hann fallið niður þegar áhrif umrædds forsenduákvæðis raungerðust.

Hvalur var því sýknaður af kröfum þessa starfsmanns síns sem varð því af tæpum 20 milljónum króna.

.

 

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 7 klukkutímum

Bjarni Guðjóns hættur hjá VÍS – Á leið í framboð?

Bjarni Guðjóns hættur hjá VÍS – Á leið í framboð?
Fréttir
Fyrir 7 klukkutímum

Stórt fíkniefnamál fyrir dóm: Fimm menn af víetnömskum uppruna ákærðir fyrir skipulagða brotastarfsemi

Stórt fíkniefnamál fyrir dóm: Fimm menn af víetnömskum uppruna ákærðir fyrir skipulagða brotastarfsemi
Fréttir
Fyrir 22 klukkutímum

Þurfa ekki að taka saman og afhenda tölur um dauðsföll

Þurfa ekki að taka saman og afhenda tölur um dauðsföll
Fréttir
Fyrir 23 klukkutímum

Jón Steinar segir hrokafullan lækni hafa rekið sig á dyr – „Hann bara belgdi sig út“

Jón Steinar segir hrokafullan lækni hafa rekið sig á dyr – „Hann bara belgdi sig út“
Fréttir
Í gær

Siggi Stormur segir breytingar fram undan – „Þetta er dagurinn sem öllu breytti“

Siggi Stormur segir breytingar fram undan – „Þetta er dagurinn sem öllu breytti“
Fréttir
Í gær

Grænlenskur múrari gaf Trump hugmyndina um bandarískt sjúkraskip til Grænlands

Grænlenskur múrari gaf Trump hugmyndina um bandarískt sjúkraskip til Grænlands