

Cristiano Ronaldo hefur tekið nýtt skref í knattspyrnuheiminum og orðið meðeigandi spænska félagsins UD Almería.
Portúgalska stórstjarnan, sem er 41 árs, hefur verið í fremstu röð í fótboltanum í yfir tvo áratugi en hyggst nú einnig láta til sín taka utan vallar. Tilkynnt var á fimmtudag að Ronaldo hefði keypt 25 prósenta hlut í félaginu í gegnum fjárfestingarfélag sitt, CR7 Sports Investments.
Í yfirlýsingu sagði Ronaldo að þetta hefði lengi verið markmið hjá sér að leggja sitt af mörkum til knattspyrnunnar utan vallar. Hann lýsti UD Almería sem félagi með sterkar undirstöður og mikla möguleika til vaxtar.
Kaupverðið hefur ekki verið gefið upp, en með þessu snýr Ronaldo aftur að spænskum fótbolta, þar sem hann lék áður með Real Madrid og vann fjölda titla áður en hann fór til Juventus árið 2018.
Ronaldo heldur þó áfram að spila með Al-Nassr samhliða nýju hlutverki sínu.