fbpx
Sunnudagur 07.júní 2026
Fréttir

Læknar neituðu að veita álit á bótakröfu vegna Covid-19 bólusetningar

Ritstjórn DV
Föstudaginn 20. febrúar 2026 15:30

Bólusetning gegn Covid-19 í Laugardalshöll. Mynd/Ernir

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Umboðsmaður Alþingis hefur lokið meðferð á kvörtun vegna tafa á afgreiðslu Sjúkratrygginga Íslands á umsókn um bætur úr sjúklingatryggingu vegna bólusetningar gegn Covid-19 veirunni. Fram kemur í bréfi umboðsmanns til kvartanda að Sjúkratryggingar hafi skýrt töfina ekki síst með því að erfiðlega hafi gengið að fá lækna til að veita nauðsynlegt sérfræðiálit en einn læknir sem hafi samþykkt að gera það hafi á endanum sagt sig frá málinu.

Kvörtunin var lögð fram 9. janúar síðastliðinn en umboðsmaður lauk málinu með bréfi til viðkomandi þann 11. febrúar en nánari upplýsingar um ástæðu þess að umsóknin var lögð fram er ekki að finna í bréfinu.

í bréfinu segir enn fremur að embætti umboðsmanns hafi í tilefni af kvörtuninni ritað Sjúkratryggingum bréf 15. janúar þar sem óskað hafi verið eftir upplýsingum um hvað liði meðferð og afgreiðslu málsins. Svar stofnunarinnar hafi borist 29. janúar og þar komi meðal annars fram að erfitt hafi reynst að fá lækna til þess að veita nauðsynlegt sérfræðiálit á málum vegna bólusetningar gegn Covid-19 og að tafir hafi orðið á yfirferð þess læknis sem fékkst svo til verksins. Þá hafi sá læknir sem hafi haft málið til yfirferðar sagt sig frá málinu og hyggist ekki taka að sér frekari mál fyrir stofnunina. Málið hafi í kjölfarið verið sent til yfirtryggingalæknis og miðað við stöðu málsins sé áætlað að ákvörðun um bótaskyldu muni liggja fyrir innan tveggja vikna.

Miðað við þau svör þá ætti umsækjandinn að vera búinn að fá svar, nú þremur vikum eftir að bréf Sjúkratrygginga var sent.

Umboðsmaður segir að lokum að þar sem kvörtunin lúti að töfum á afgreiðslu málsins, og í ljósi áforma Sjúkratrygginga um að ljúka málinu sé ekki ástæða til að aðhafast frekar í tilefni af kvörtuninni að svo stöddu. Með hliðsjón af því lauk umboðsmaður meðferð sinni á málinu en áréttar við kvartandann að standist áform Sjúkratrygginga ekki og frekari tafir verði á meðferð málsins, geti viðkomandi leitað til umboðsmanns að nýju.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Krefst svara um hvort mannréttindi séu brotin í almannatryggingakerfinu

Krefst svara um hvort mannréttindi séu brotin í almannatryggingakerfinu
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Málverkum stolið af sýningu í Bolholti um hábjartan dag

Málverkum stolið af sýningu í Bolholti um hábjartan dag
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Réttarhöld framundan í Edition-málinu – Sökuð um að hafa brugðið snöru um háls dóttur sinnar og stungið hana í hjartað

Réttarhöld framundan í Edition-málinu – Sökuð um að hafa brugðið snöru um háls dóttur sinnar og stungið hana í hjartað
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Davíð segir aðeins tímaspursmál þangað til annað ungmenni láti lífið: „Við þurfum að vakna og það núna“

Davíð segir aðeins tímaspursmál þangað til annað ungmenni láti lífið: „Við þurfum að vakna og það núna“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Ósáttur við heilbrigðiseftirlitið, lögregluna og sýslumann – Hafi eyðilagt viðburð

Ósáttur við heilbrigðiseftirlitið, lögregluna og sýslumann – Hafi eyðilagt viðburð
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Vendingar í deilu Bríetar og Pálma – Frávísun vegna verulegra ágalla

Vendingar í deilu Bríetar og Pálma – Frávísun vegna verulegra ágalla
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Gagnrýnir gagnrýni Snorra – „Gerið betur en gervigreind kæra stjórnarandstaða. Lygarnar eru allar ykkar megin“

Gagnrýnir gagnrýni Snorra – „Gerið betur en gervigreind kæra stjórnarandstaða. Lygarnar eru allar ykkar megin“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Áslaug Arna fær stuðning og gagnrýni eftir umfjöllun um laun hennar – „Hjóla af hörku og hatri gegn konum“ – „Sjúga spena ríkisins“

Áslaug Arna fær stuðning og gagnrýni eftir umfjöllun um laun hennar – „Hjóla af hörku og hatri gegn konum“ – „Sjúga spena ríkisins“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Kvartaði vegna trúnaðarbrests í sveitarstjórn

Kvartaði vegna trúnaðarbrests í sveitarstjórn