
Harry Maguire virðist hafa verið sáttur við frí sitt og eiginkonu sinnar á Íslandi á dögunum.
Maguire, sem er leikmaður Manchester United, fékk frí um liðna helgi þar sem liðið er úr leik í bikarnum og átti því ekki leik.
Nýtti hann það vel á Íslandi, en það vakti athygli um helgina þegar Egill Einarsson, Gillz, birti mynd af þeim félögum saman.
Maguire birti fyrir skömmu myndasyrpu frá fríinu á Íslandi. Segir hann batteríin nú fullhlaðin. Þetta má sjá hér að neðan.
Maguire og United snúa aftur á völlinn á mánudag, þegar liðið heimsækir Everton í ensku úrvalsdeildinni. Gengið hefur farið stórbatnandi frá því Michael Carrick tók við liðinu af Ruben Amorim.
View this post on Instagram