
Á blaðamannafundi í gærkvöldi sagði Tina Goncalves, lögreglustjóri í Pawtucket, að svo virðist sem um einhvers konar fjölskylduharmleik hafi verið að ræða þar sem sonur árásarmannsins var að spila og aðstandendur hans í stúkunni.
„Við höfum borið kennsl á hinn grunaða með fæðingarnafni; það nafn er Robert Dorgan. Við höfum einnig komist að því að viðkomandi gengur einnig undir nafninu Roberta og notar jafnframt eftirnafnið Esposito,“ sagði Tina.
Í frétt New York Post kemur fram að Roberta hefði farið mikinn á samfélagsmiðlum og gagnrýnt þar meðal annars andúð á trans fólki. Í fréttinni er meðal annars vísað í svar Robertu á samfélagsmiðlum daginn fyrir árásina þar sem bandarísk þingkona var kölluð karlmaður.
„Haltu áfram að níða okkur, en ekki láta það koma þér á óvart ef við göngum berserksgang.”
Fram kemur að Roberta hafi gengist undir kynleiðréttingaraðgerð árið 2020 og gengið í gegnum skilnað árið 2021 sem hafi reynst fjölskyldunni afar erfiður. Í frétt Post kemur fram að á meðal hinna látnu sé barnsmóðir Robertu, það er móðir drengsins sem var að spila þegar árásin átti sér stað.
Á blaðamannafundinum kom fram að Roberta hafi verið með fleiri en eina byssu meðferðis skothríðin hófst. Rannsókn málsins stendur yfir en í frétt New York Post kemur fram að þeir sem særðust hafi enn verið í lífshættu í gærkvöldi.
Borgarstjóri Pawtucket, Donald Grebien, sagði í yfirlýsingu að borgin væri í sorg eftir atburðinn. Hann kvaðst treysta því að rannsókn málsins myndi leiða allar staðreyndir í ljós og að yfirvöld myndu upplýsa almenning þegar staðfestar upplýsingar lægju fyrir.