fbpx
Miðvikudagur 11.mars 2026
Pressan

Óvæntar vinsældir leikfangahests – Mistökum í framleiðslunni að þakka

Pressan
Laugardaginn 14. febrúar 2026 17:30

Hann hefur slegið í gegn.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Þau óheppilegur, eða öllu heldur heppilegu, mistök urðu í framleiðslu á leikfangahesti hjá kínverskri verksmiðju að munnvikin voru látin vísa niður í stað þess að vísa upp á við. En þessi mistök reyndust hið mesta lán því hesturinn hefur svo sannarleg slegið í gegn og rokselst.

The Guardian segir að hugsanlega hafi gæðaeftirlitsmaðurinn í verksmiðjunni verið svolítið þreyttur þegar hann samþykkti útlit hestsins þegar fyrsta eintakið kom á færibandinu.

Hesturinn, sem er lítill og rauður, átti að brosa út að eyrum. En fyrir mistök var munninum snúið um 180 gráður og því vísa munnvikin niður. Og þar með er ekki öll sagan sögð, því það lítur út fyrir að nasirnar séu tár á höku hestsins.

Hesturinn rataði síðan í verslanir ásamt hesti með rétta útlitið. Þá gerðist það óvænta, hesturinn með ranga útlitið sló í gegn og rokseldist.

Framleiðandinn, Happy Sister, neyddist til að opna 10 framleiðslulínur í viðbót til að anna eftirspurn.

Það eykur auðvitað áhugann á hestinum að þann 17. febrúar hefst Ár hestsins í Kína þar sem hesturinn táknar orku og vinnusemi.

En þessi orka hefur ekki slegið alveg í gegn hjá kínverskum almenningi sem leggur mikið á sig til að ná endum saman. „Fólk grínast með að grátandi hesturinn endurspegli hvernig það lítur út í vinnunni en sá brosandi er hvernig maður lýtur út eftir vinnu,“ sagði Zhang Huoqing, eigandi Happy Sister, í samtali við Reuters.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Walker kallar þetta gott
Pressan
Í gær

Sonurinn tekinn við: Sagður eiga milljarða og lúxuseignir um allan heim

Sonurinn tekinn við: Sagður eiga milljarða og lúxuseignir um allan heim
Pressan
Í gær

Gúgglaði Epstein klukkustund áður en lík hans fannst – Verslaði húsgögn frekar en að gæta kynferðisglæpamannsins

Gúgglaði Epstein klukkustund áður en lík hans fannst – Verslaði húsgögn frekar en að gæta kynferðisglæpamannsins
Pressan
Fyrir 2 dögum

Þetta er nískasta fólkið samkvæmt stjörnumerkjunum

Þetta er nískasta fólkið samkvæmt stjörnumerkjunum
Pressan
Fyrir 2 dögum

Á rigningardegi 1986 lenti verkfræðingur í vanda á bensínstöð – Í dag er lausn hans á vandanum í öllum bílum

Á rigningardegi 1986 lenti verkfræðingur í vanda á bensínstöð – Í dag er lausn hans á vandanum í öllum bílum
Pressan
Fyrir 3 dögum

Átti í ástarsambandi við 44 árum eldri mann – Hvað ætlaði hún sér?

Átti í ástarsambandi við 44 árum eldri mann – Hvað ætlaði hún sér?
Pressan
Fyrir 3 dögum

Verður tekinn af lífi á fimmtudaginn en hefur þó engan myrt – „Ég ætti ekki að deyja fyrir eitthvað sem ég gerði ekki“ 

Verður tekinn af lífi á fimmtudaginn en hefur þó engan myrt – „Ég ætti ekki að deyja fyrir eitthvað sem ég gerði ekki“