fbpx
Sunnudagur 19.apríl 2026
Pressan

Þeir sem gera þetta á nóttunni sofa betur

Pressan
Sunnudaginn 15. febrúar 2026 18:30

Það er gott að láta fæturna standa undan sænginni. Mynd/iStock

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Þegar þú smeygir þér undir sængina fer líkaminn í mjög sérstaka stellingu, nánast sjálfvirkt. En þeir sem gera eitt ákveðið eftir að undir sængina er komið, sofa að sögn betur en aðrir.

Sumir vilja pakka sér inn í sængina, svona eins og pylsa í brauði, aðrir liggja á maganum eða í fósturstellingu og enn aðrir láta annan fótinn standa undan sænginni. Börn myndu líklega aldrei þora því af ótta við að skrímslið undir rúminu myndi bíta tærnar af.

En fullorðnir gera þetta nánast sjálfvirkt. Margir vakna á morgnana með annan fótinn undan sænginni eða hangandi út yfir rúmstokkinn. Þetta er ekki erfiðri nótt að kenna heldur er þetta einfaldlega snilld mannslíkamans.

Ástæðan er að þegar maður sofnar, lækkar líkamshitinn um eina gráðu. Það er ekki mikið en nægir til að kæla mann niður. Það er erfiðara að sofna ef þessi kæling á sér ekki stað og svefninn verður ekki eins djúpur og maður vaknar oftar.

Til að vinna gegn þessu stingur maður fætinum undan sænginni eða færir hann yfir á kalda hluta rúmsins.

Það er því ekkert undarlegt við að sofa með annan fótinn undan sænginni, líkaminn er einfaldlega að reyna að stýra hitastiginu.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Í gær

Ný hótun frá Rússlandi beinist að Finnlandi og Eystrasaltsríkjum

Ný hótun frá Rússlandi beinist að Finnlandi og Eystrasaltsríkjum
Pressan
Í gær

Íranir opna Hormússund og olíuverð lækkar – Trump glaður

Íranir opna Hormússund og olíuverð lækkar – Trump glaður
Pressan
Fyrir 3 dögum

Aflimaður fyrir neðan nafla eftir hræðilegt slys – Grætur bara yfir einu

Aflimaður fyrir neðan nafla eftir hræðilegt slys – Grætur bara yfir einu
Pressan
Fyrir 3 dögum

Ný varnarlína Evrópu: Plan B í vinnslu ef Trump yfirgefur NATO

Ný varnarlína Evrópu: Plan B í vinnslu ef Trump yfirgefur NATO