fbpx
Laugardagur 18.apríl 2026
Pressan

Þetta einfalda ráð getur dregið úr flughræðslu

Pressan
Laugardaginn 14. febrúar 2026 16:30

Þessi kona virðist vera ansi flughrædd. Mynd:Getty

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Rithöfundurinn og hlaðvarpsstjórnandinn Mel Robbins skýrði nýlega frá flughræðslunni sem hrjáir hana og deildi um leið einföldu ráði sem hefur hjálpað henni að takast á við hræðsluna.

Hún ræddi um þetta í hlaðvarpinu Delusional Diaries þar sem Halley Kate og Jaz voru við stjórnvölinn.

Robbins sagði að flughræðsla snúist ekki alltaf um sjálfa flugvélina. Það geti verið hugsanir, sem ólmast í huga fólks á leiðinni, sérstaklega um hrap, ókyrrð í lofi eða að flugmennirnir missi stjórn á vélinni, sem ráði för.

„Ástæðan fyrir að maður er flughræddur er að maður hugsar um að flugvélin geti hrapað, að maður deyi og að lífið sé búið,“ sagði hún að sögn NYPost.

Til að takast á við hræðsluna notast hún við aðferð sem hún kallar „ankerishugsun“. Hún gengur einfaldlega út á að sjá fyrir sér ákveðið, jákvætt augnablik sem muni eiga sér stað þegar flugferðin er afstaðin.

Með þessari aðferð er heilinn látinn einbeita sér að ákveðnum hlut þegar hræðslan sækir að. Robbins sagði að heilinn geri ekki greinarmun á því sem er raunverulegt og „ankerishugsuninni“ sem geri honum kleift að einbeita sér að einhverju öðru þegar hræðslan sækir að. Þannig sé hægt að komast hjá því að velta sér upp úr verstu hugsanlegu sviðsmyndum.

Hún benti á að þessi aðferði losi fólk ekki alveg við hræðsluna en geti dregið úr henni.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Rekinn korter í HM
Pressan
Í gær

Ný hótun frá Rússlandi beinist að Finnlandi og Eystrasaltsríkjum

Ný hótun frá Rússlandi beinist að Finnlandi og Eystrasaltsríkjum
Pressan
Í gær

Íranir opna Hormússund og olíuverð lækkar – Trump glaður

Íranir opna Hormússund og olíuverð lækkar – Trump glaður
Pressan
Fyrir 2 dögum

Harmleikur á heimili fyrrverandi vararíkisstjóra í hatrammri skilnaðardeilu

Harmleikur á heimili fyrrverandi vararíkisstjóra í hatrammri skilnaðardeilu
Pressan
Fyrir 2 dögum

Tilraun til að setja met endaði með harmleik

Tilraun til að setja met endaði með harmleik
Pressan
Fyrir 4 dögum

Þetta er líklega elsta górilla heims

Þetta er líklega elsta górilla heims
Pressan
Fyrir 4 dögum

Skemmtisiglingin breyttist í martröð og nú hefur 16 ára drengur verið ákærður fyrir að nauðga og bana stjúpsystur sinni

Skemmtisiglingin breyttist í martröð og nú hefur 16 ára drengur verið ákærður fyrir að nauðga og bana stjúpsystur sinni