fbpx
Sunnudagur 19.apríl 2026
Pressan

Hið óhugsandi er orðið alvara – Norðurlöndin ræða um að koma sér upp kjarnorkuvopnum

Pressan
Sunnudaginn 15. febrúar 2026 12:30

Munu Norðurlöndin koma sér upp kjarnorkuvopnum. Mynd:Getty

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Það sem hefur alltaf þótt óhugsandi er nú orðið að veruleika. Byrjað er að ræða hvort Norðurlöndin eigi að koma sér upp kjarnorkuvopnum.

Fyrir nokkrum vikum hvatti Dagens Nyheter, sem er stærsta dagblað Svíþjóðar, til að þetta yrði rætt af alvöru. „Enginn vill ræða um sænsk kjarnorkuvopn – en við neyðumst til þess,“ skrifaði blaðið.

Þetta virðist hafa vakið athygli því umræðan hefur nú náð til annarra Norðurlanda að sögn Weekendavisen sem segir að ástæðan fyrir þessu sé vaxandi óvissa um hvort hægt sé að treysta á Bandaríkin sem bandalagsríki og ótti við Rússland.

Jeppe Kofod, fyrrum utanríkisráðherra Danmerkur, hefur opnað umræðuna í Danmörku og stungið upp á að Norðurlöndin komi sér sameiginlega upp kjarnorkuvopnum. „Fyrir áratug hefði þetta verið algjörlega óhugsandi að við tækjum þessa umræðu í Danmörku og á Norðurlöndunum,“ sagði hann.

Hvað varðar kostnaðinn sagði Johannes Kibsgaard, norskur hershöfðingi, að Norðurlöndin geti komið sér upp kjarnorkuvopnum, þau ráði við það tæknilega og fjárhagslega. Kostnaðurinn er að hans mati sem svarar til um 13.000 milljarða íslenskra króna á tíu ára tímabili.

Gagnrýnendur vara við því að þetta muni aðeins gera heiminn enn óöruggari og benda á að betra sé að treysta á að Frakkland og Bretland veiti kjarnorkuvopnavernd en bæði löndin eiga kjarnorkuvopn.

David Carlqvist, sænskur öryggissérfræðingur, telur að Norðurlöndin ásamt öðrum Evrópuríkjum geti neyðst til að taka ákvörðun um þetta: „Þetta mun ekki gerast á morgun eða næsta árið en gæti gerst innan ekki svo langs tíma af því að það eru engir aðrir valkostir,“ sagði hann.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 20 klukkutímum

Prestur ákærður fyrir manndráp eftir að maður drukknaði þegar hann var skírður

Prestur ákærður fyrir manndráp eftir að maður drukknaði þegar hann var skírður
Pressan
Í gær

Repúblikanar streyma að útganginum og það ógnar Trump

Repúblikanar streyma að útganginum og það ógnar Trump
Pressan
Í gær

Söngvarinn handtekinn vegna rotnandi líks táningsstúlku sem fannst í Teslu-bifreið hans

Söngvarinn handtekinn vegna rotnandi líks táningsstúlku sem fannst í Teslu-bifreið hans
Pressan
Í gær

Ný hótun frá Rússlandi beinist að Finnlandi og Eystrasaltsríkjum

Ný hótun frá Rússlandi beinist að Finnlandi og Eystrasaltsríkjum
Pressan
Fyrir 3 dögum

Tilraun til að setja met endaði með harmleik

Tilraun til að setja met endaði með harmleik
Pressan
Fyrir 3 dögum

Aflimaður fyrir neðan nafla eftir hræðilegt slys – Grætur bara yfir einu

Aflimaður fyrir neðan nafla eftir hræðilegt slys – Grætur bara yfir einu
Pressan
Fyrir 3 dögum

Trump reyndi að fá DoorDash-sendilinn til að tjá sig um hitamál – Það misheppnaðist hrapallega

Trump reyndi að fá DoorDash-sendilinn til að tjá sig um hitamál – Það misheppnaðist hrapallega
Pressan
Fyrir 3 dögum

Fyrsta konan á leið í gálgann

Fyrsta konan á leið í gálgann