fbpx
Laugardagur 18.apríl 2026
Pressan

Samkvæmt vísindunum eru konur ánægðastar með þessa menn

Pressan
Sunnudaginn 15. febrúar 2026 20:30

Myndin er úr safni og tengist fréttinni ekki beint

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Hvað ef ást snýst ekki um áhyggjur af tölu? Ný rannsókn skorar hina almennu skoðun fólks, varðandi aldursmun para, á hólm.

Í rannsókninni, sem hefur verið birt í Relationship Therapy, var sjónunum beint að hópi gagnkynhneigðra kvenna á aldrinum 25 til 57 ára. Flestar þeirra voru frá Bretlandi, Bandaríkjunum, Belgíu og Þýskalandi.

Vísindamennirnir báru saman tvo hópa – konur sem áttu yngri maka og konur sem voru í sambúð með mönnum á sama aldri. Þátttakendurnir fylltu út spurningaskema sem mældi þrjá mikilvæga þætti varðandi tilfinningalega vellíðan. Þetta eru sjálfsálit, tilfinningaleg greind og huglæg hamingja.

Niðurstaðan var að konur, sem bjuggu með yngri mönnum, skoruðu hátt í öllum þremur þáttunum. Þær lýstu sér sem sjálfsöruggari, sáttari við tilfinningar sínar og sáttari við ástarsamband sitt. Þetta er auðvitað gullin blanda til að eiga í innihaldsríku og góðu ástarsambandi sem fullnægir dýpstu þörfum.

Rannsóknin byggist auðvitað á mjög litlu úrtaki sem dregur auðvitað úr hversu mikið er hægt að miða við niðurstöður hennar. Samsetning þátttakendanna endurspeglaði heldur ekki samsetningu samfélagsins að fullu.

En niðurstöðurnar gefa vísbendingu um að ástarsögur eru ekki í föstum ramma og að hamingjan mælist ekki í aldursmun, heldur í gæðum sambandsins.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Rekinn korter í HM
Pressan
Í gær

Ný hótun frá Rússlandi beinist að Finnlandi og Eystrasaltsríkjum

Ný hótun frá Rússlandi beinist að Finnlandi og Eystrasaltsríkjum
Pressan
Í gær

Íranir opna Hormússund og olíuverð lækkar – Trump glaður

Íranir opna Hormússund og olíuverð lækkar – Trump glaður
Pressan
Fyrir 2 dögum

Harmleikur á heimili fyrrverandi vararíkisstjóra í hatrammri skilnaðardeilu

Harmleikur á heimili fyrrverandi vararíkisstjóra í hatrammri skilnaðardeilu
Pressan
Fyrir 2 dögum

Tilraun til að setja met endaði með harmleik

Tilraun til að setja met endaði með harmleik
Pressan
Fyrir 4 dögum

Þetta er líklega elsta górilla heims

Þetta er líklega elsta górilla heims
Pressan
Fyrir 4 dögum

Skemmtisiglingin breyttist í martröð og nú hefur 16 ára drengur verið ákærður fyrir að nauðga og bana stjúpsystur sinni

Skemmtisiglingin breyttist í martröð og nú hefur 16 ára drengur verið ákærður fyrir að nauðga og bana stjúpsystur sinni