fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Fréttir

Jón ósáttur við afsögn Guðbrands – „Hvað kemur það einhverjum við hvað hann og einhver kona eru að ræða saman?“

Ritstjórn DV
Mánudaginn 16. febrúar 2026 11:00

Jón Gnarr

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Jón Gnarr, þingmaður Viðreisnar, gerir að umtalsefni, afsögn félaga hans úr þingflokknum, Guðbrandar Einarssonar, fyrir nokkrum vikum, á grundvelli þess að hann hefði hugleitt vændiskaup árið 2012. Jón er ósáttur við afsögnina eins og hann fór yfir í löngum pistli á DV á sunnudag, þar sem hann veltir fyrir sér útskúfun manna úr samfélaginu fyrr og nú.

Tilefni þess að Guðbrandur sagði af sér þingmennsku var að Vísir hafði komist að því árið 2012 var Guðbrandur yfirheyrður af lögreglu vegna gruns um tilraun til vændiskaupa. Guðbrandur sagðist hafa haft samband við konu með vændiskaup í huga en honum hafi síðan snúist hugur er hann mætti á vettvang og hin vafasömu kaup því ekki átt sér stað.

Jón segir að afsögn Guðbrands hafi slegið hann mjög illa og hann telur þau málalok vera ósanngjörn. Jón skrifar:

„Fyrir nokkrum vikum var ég, ásamt öðrum þingmönnum og ráðherrum Viðreisnar, boðaður á óvæntan þingflokksfund. Ég vissi að eitthvað var ekki með felldu en hvað það var nákvæmlega vissi ég ekki. Ég hef einu sinni áður setið svona neyðarfund og þá var það til að upplýsa okkur um fyrirhugaða afsögn ráðherra í ríkisstjórninni. Ég velti því auðvitað fyrir mér hvort hugsanlega væru einhverjir erfiðleikar í ríkisstjórnarsamstarfinu, ágreiningur eða missætti, jafnvel einhverjar mannabreytingar í brúnni. Mér brá því óneitanlega þegar okkur var tilkynnt hver væri raunveruleg ástæða þessa fundar. Einn af þingmönnum Viðreisnar, maður sem ég hafði unnið náið með og líkaði einstaklega vel við, hafði orðið uppvís að því að hafa ætlað að eiga viðskipti við vændiskonu. Þetta var ekki nýskeð heldur voru 12 ár liðin frá því að þetta átti að hafa gerst, eða ekki gerst. Ég hafði ekkert heyrt um þetta og þetta kom mér reglulega á óvart. Ég kynntist þessum þingmanni í kosningabaráttunni, kunni strax vel við hann og við urðum ágætir félagar. Hann er líka alveg einstaklega viðkunnanlegur maður, réttsýnn, hjálpsamur og traustur með góðan vilja. Góður kall, eins og margir hafa gjarnan sagt um hann.“

Jón segir lög um vændi vera sérkennileg en tekur jafnframt fram að hann mæli vændi ekki bót enda leiði það hörmungar yfir þau sem það stunda:

„Lögin um vændi eru reyndar nokkuð sérkennileg því þar er bæði leyft og bannað. Manneskja má löglega bjóða og stunda vændi en það er algjörlega ólöglegt að kaupa vændið. Ég hef ekki mikla þekkingu á þessu en þetta ku vera fyrirkomulag sem tíðkast í nokkrum löndum. Ég vil taka það fram að ég er alls enginn stuðningsmaður vændis og veit að á því eru margar sorglegar og ömurlegar hliðar. Mér hefur aldrei dottið í hug að eiga slík viðskipti og einu kynni mín af vændiskonum er þegar ég starfaði við áfengis- og fíkniefnameðferðir í Svíþjóð en þangað komu stundum vændiskonur frá Stokkhólmi, konur sem höfðu leiðst út í vændi til að fjármagna fíkniefnaneyslu. Þegar ég var sjálfur leigubílstjóri í Reykjavík 1990 og eitthvað þá man ég eftir ákveðnum stöðum þar sem átti að fara fram vændi. Stundum var ég með farþega í bílnum sem áttu stefnumót við vændiskonu. Sjálfur fékk ég tvisvar sinnum raunveruleg tilboð um að stunda vændi. Í annað skiptið var það kona ein sem bauð mér að koma inn með sér og stunda kynlíf með sér og ég mætti láta mælinn ganga á meðan. Hitt skiptið var samkynhneigður maður með svipaðar óskir. Ég hafnaði báðum þessum tilboðum. Mér finnst einhver hræðileg örvænting og einmanaleiki tengjast vændi og það er fyrir mér ávísun á andlegan dauða.

En það er bara mín skoðun. Það geta svo vel verið til allskonar fjölbreyttar hliðar á þessari iðju sem ég veit ekkert um. En það er auðvelt að dæma um eitthvað sem maður hefur lítið vit eða áhuga á. Ég hef lesið um kynlífsmeðferð sem kallast á ensku surrogate partner therapy. Þar eru viðurkenndir og menntaðir meðferðaraðilar sem meðhöndla kynferðislegan vanda skjólstæðinga með líkamlegri snertingu, nekt og kynlífi. Staðgöngu makameðferð. Væri svona bannað hér ? Er til fólk sem stundar vændi, ekki af neyð heldur í gróðaskyni? Eru jafnvel til dæmi um fólk sem byggir ástarsambönd og jafnvel hjónabönd á vændi ? Ég hef alveg heyrt um svoleiðis en ég sel það samt ekki dýrara en ég keypti það. En mér finnst svolítið skrítið að ég búi í samfélagi þar sem lögreglan og ríkisvaldið séu að njósna um og skipta sér af einkalífi og kynlífi fullorðins fólks.“

Mannvonska siðprúða meirihlutans

Jón spyr hvað það komu öðrum við að Guðbrandur og einhver kona hafi verið að ræða sín á milli. Hann segist upplifa samfélagið sem mannfjandsamlegt, undir oki siðprúðs og dómharðs minnihluta. Jóni er mikið niðri fyrir:

„Mér brá auðvitað að heyra þetta og allt hringsnerist í höfðinu á mér. Ég komst í tilfinningalegt uppnám, var sorgmæddur en líka reiður og ringlaður. En fyrst og fremst fannst mér þetta ósanngjarnt. Hvað kemur það einhverjum við hvað hann og einhver kona eru að ræða saman ? Það var enginn glæpur framinn. Samkvæmt upplýsingunum þá var hann með einhverskonar óskýra áætlun um að eiga viðskipti við vændiskonu en snerist hugur áður en til kastanna kom. Það var því enginn gjörningur, ekkert fórnarlamb eða nokkur manneskja sem varð fyrir neinum skaða. Að því best ég veit. Samkvæmt því sem ég kemst næst þá hefur lögreglan líklega verið að hlera samskipti þessarar konu við einhverja menn og í framhaldi af því boðað hann til yfirheyrslu. En hann var ekki handtekinn eða ákærður fyrir neitt enda heldur ekki brotið neitt af sér. Nú þekki ég ekki málavöxtu, rannsóknaraðferðir eða löggjöfina nægilega vel en mér sýnist á öllu, eða hef að minnsta kosti ekki enn þá séð neitt sem bendir til þess að hann hafi framið afbrot. Ég er nú búinn að velta þessu fyrir mér fram og aftur og ræða við ýmsa. Það er mér ofviða að leggja dóm á þetta. En þetta hvílir ekki vel í mér. Mér finnst þetta ósanngjarnt. Eiginlega bara mannvonska. Þessi ákvörðun var ekki forystumönnum og starfsfólki að kenna. Við vorum bara sett í þessa stöðu. Góður maður, sem hefur lifað nokkuð flekklausu lífi og hefur haft góðan vilja til að láta gott af sér leiða í lífinu neyðist til að enda sinn pólitíska feril með þessum niðurlægjandi hætti. Mér finnst ég stundum búa í mannfjandsamlegu landi þar sem hinn siðprúði meirihluti, í krafti fjöldans og með óttann að vopni, getur fellt huglæga dóma þar sem menn eru niðurlægðir, sviptir æru sinni, atvinnu og lifibrauði og jafnvel útskúfaðir. Hvað dómarnir eru harðir eða langir virðist fara eftir geðþótta og samfélagsstemningu. Svert mannorð. Þessi brot eru alltaf af kynferðislegum eða siðferðislegum toga, gjarnan eitthvað sem hefur sært okkar viðkvæmu blygðunarkennd þannig að okkur misbýður. Og þarna skiptir engu máli hvort menn eru heilir á geði, fíkniefnaneytendur, undir áhrifum hugbreytandi efna eða þroskaskertir eða hversu langt er liðið frá hinu meinta broti. Við stöndum með fórnarlömbum og trúum þolendum og erum dugleg að lýsa því yfir á samfélagsmiðlum. Afstaða okkar byggir yfirleitt ekki á gögnum máls, staðreyndum eða dómsmeðferð heldur trú. Þarna er líka á ferðinni félagslegur þrýstingur. Og ótti.“

Pistil Jóns Gnarr í heild má lesa hér.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Sagan endalausa? Margrét ósátt við dómara sem hefur gefið út dagsetningu á endurflutningi á sakamáli gegn henni

Sagan endalausa? Margrét ósátt við dómara sem hefur gefið út dagsetningu á endurflutningi á sakamáli gegn henni
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Prentvilla kemur í veg fyrir útburð á síbrotakonu í Bríetartúni

Prentvilla kemur í veg fyrir útburð á síbrotakonu í Bríetartúni
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Steinunn og Jacques urðu ástfangin við fyrstu kynni en leiðir skildu í 40 ár – „Höfum við ákveðið að týna ekki ástinni aftur, aldrei aftur“

Steinunn og Jacques urðu ástfangin við fyrstu kynni en leiðir skildu í 40 ár – „Höfum við ákveðið að týna ekki ástinni aftur, aldrei aftur“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Ferðamenn frá Bandaríkjunum auðveldastir í samskiptum

Ferðamenn frá Bandaríkjunum auðveldastir í samskiptum