fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
433Sport

Sökuð um að ætla að gabba eina stærstu stjörnu heims til að barna sig – Svona brást hún við

433
Föstudaginn 13. febrúar 2026 20:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Belgíska fyrirsætan Rose Bertram lenti á sínum tíma í miklu fjölmiðlafári vegna meintrar áætlunar sinnar varðandi knattspyrnustjörnuna Kylian Mbappe. Fjallað er um þetta á íþróttasíðum breska blaðsins Daily Star.

Bertram, sem áður var í sambandi með hollenska landsliðsmanninum Gregory van der Wiel, var orðuð við Mbappe árið 2022 skömmu eftir sambandsslit. Í kjölfarið hélt franskur bloggari því fram að hún hygðist eignast barn með leikmanninum til að tryggja framtíð sína.

Fullyrðingarnar vöktu mikla athygli á netinu og urðu til þess að Bertram varð fyrir netníði. Hún brást við á samfélagsmiðlum og hafnaði ásökununum alfarið.

„Ekkert af því sem hefur verið sagt eða skrifað er satt,“ skrifaði hún og gagnrýndi harðlega neteinelti og sögusagnir sem gætu skaðað mannorð og fjölskyldu.

Bertram hefur síðan byggt upp farsælan feril sem fyrirsæta og starfað fyrir alþjóðleg vörumerki á borð við H&M og L’Oréal.

Hún hefur jafnframt talað fyrir fjölbreytileika í tískuheiminum og mikilvægi þess að brjóta niður staðalímyndir.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 2 dögum

Þénaði 18 milljónir á viku en á í vandræðum í dag – Glímir við þunglyndi og tók því þetta starf

Þénaði 18 milljónir á viku en á í vandræðum í dag – Glímir við þunglyndi og tók því þetta starf
433Sport
Fyrir 2 dögum

Segir þetta helstu hindrunina fyrir Íslendinga – Hvetur Kára til að græja beint flug

Segir þetta helstu hindrunina fyrir Íslendinga – Hvetur Kára til að græja beint flug
433Sport
Fyrir 2 dögum

Segir leikmanni sínum að halda haus eftir orðróma um Arsenal

Segir leikmanni sínum að halda haus eftir orðróma um Arsenal
433Sport
Fyrir 2 dögum

Jóhann segir fréttirnar frá Eyjum merki um vandræðagang – „Það stappar ekki stálinu í neinn“

Jóhann segir fréttirnar frá Eyjum merki um vandræðagang – „Það stappar ekki stálinu í neinn“
433Sport
Fyrir 2 dögum

Munu ekki samþykkja sama hvernig seðlum verður veifað framan í þá

Munu ekki samþykkja sama hvernig seðlum verður veifað framan í þá
433Sport
Fyrir 2 dögum

Skrifa ótrúlega sögu í Íslendingabænum

Skrifa ótrúlega sögu í Íslendingabænum