

Derek McInnes, knattspyrnustjóri Hearts, segir að leikmenn liðsins séu staðráðnir í að berjast um skoska meistaratitilinn eftir dramatískan 1-0 sigur á Hibernian í borgarslagnum.
Tómas Bent Magnús skoraði sigurmarkið á 88. mínútu og tryggði Hearts sex stiga forskot á toppi deildarinnar.
Tómas Bent kom til Heart fyrir tímabilið frá Val og hefur staðið sig frábærlega. Á forsíðu Daily Mail er talað um „Hell Bent“

Hearts svaraði þar með fyrir tap gegn St Mirren í síðustu umferð og situr nú í bílstjórasætinu í titilbaráttunni. Á meðan reyna Rangers og Celtic að halda í við toppliðið í sínum leikjum.
„Við fundum leið til að skora og mér fannst við eiga sigurinn skilið,“ sagði McInnes.
„Við erum á toppnum af ástæðu og eigum skilið virðingu fyrir það. Við erum með hóp sem er staðráðinn í að ná sem mestu út úr þessu.“
Hann segir viðbrögðin eftir tapið gegn St Mirren hafa verið ýkt. „Það var einn leikur og við færðum okkur áfram. Stór lið finna leið til að vinna þó þau spili ekki alltaf vel – það gerðum við í kvöld.“
McInnes viðurkennir þó að liðið þurfi að spila betur í næstu leikjum, en hrósaði baráttu og karakter í erfiðum derby-leik.