fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
433Sport

Kallar eftir því að Liverpool og Aston Villa nái samkomulagi

Hörður Snævar Jónsson
Laugardaginn 7. febrúar 2026 11:00

Getty Images

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Liverpool og Aston Villa hafa verið hvött til að finna lausn í máli Harvey Elliott svo miðjumaðurinn geti haldið ferli sínum áfram án óvissu.

Elliott gekk til liðs við Villa á láni síðasta sumar. Í samningnum er ákvæði um skyldukaup ef hann nær ákveðnum lágmarksfjölda leikja fyrir lið Unai Emery. Sá fjöldi er tíu leikir, sem myndi þýða um 35 milljóna punda kaup næsta sumar.

Emery virðist þó ekki meta leikmanninn nægilega hátt til að réttlæta slíkan kostnað. Elliott hefur aðeins spilað sjö leiki og fékk til að mynda ekkert að spreyta sig á löngu tímabili frá byrjun október til loka janúar.

Talið er að Villa vilji forðast að virkja skyldukaupin. Þar sem Elliott hefur þegar spilað fyrir tvö félög á tímabilinu getur hann ekki farið annað samkvæmt reglum FIFA.

Samkvæmt Daily Mail hafa félögin rætt stöðuna en ekki fundið lausn. Christian Purslow, fyrrverandi framkvæmdastjóri Liverpool og Villa, segir stöðuna óheilbrigða og telur skynsamlegt að félögin nái málamiðlun, til dæmis með því að breyta ákvæðum samningsins.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Í gær

Carrick ræðir framtíð Maguire og vonar það besta

Carrick ræðir framtíð Maguire og vonar það besta
433Sport
Í gær

Lögreglan leitar að glæpamanni sem líkist Steven Gerrard

Lögreglan leitar að glæpamanni sem líkist Steven Gerrard
433Sport
Fyrir 2 dögum

Segir kostulega sögu af því þegar hann hitti Maradona á veitingastað

Segir kostulega sögu af því þegar hann hitti Maradona á veitingastað
433Sport
Fyrir 2 dögum

Þénaði 18 milljónir á viku en á í vandræðum í dag – Glímir við þunglyndi og tók því þetta starf

Þénaði 18 milljónir á viku en á í vandræðum í dag – Glímir við þunglyndi og tók því þetta starf
433Sport
Fyrir 2 dögum

Kemur með áhugaverðan punkt um Gylfa Þór – Staðan sé nú allt önnur

Kemur með áhugaverðan punkt um Gylfa Þór – Staðan sé nú allt önnur
433Sport
Fyrir 2 dögum

Munu ekki samþykkja sama hvernig seðlum verður veifað framan í þá

Munu ekki samþykkja sama hvernig seðlum verður veifað framan í þá