

Tildrög slyssins eru í rannsókn en svo virðist sem bifreið hafi endað ofan á vegriði. Í frétt Vísis kemur fram að tilkynning um slysið hafi borist á tólfta tímanum í gærkvöldi og var Miklabraut lokuð um tíma í báðar áttir vegna slyssins.
Ekki liggja fyrir upplýsingar um hinn slasaða.