fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Fréttir

Tekinn með hnífa í sundi og Hagkaup

Jakob Snævar Ólafsson
Fimmtudaginn 5. febrúar 2026 11:30

Mynd: DV/Maggi gnúsari

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Karlmaður hefur verið ákærður fyrir vopnalagabrot en í tvö mismunandi skipti fundust á honum tveir hnífar, í fyrra skiptið í Kópavogslaug og í það seinna í einni af verslunum Hagkaupa.

Maðurinn sem er á þrítugsaldri er skráður með ótilgreint heimilisfang í þjóðskrá og því hefur væntanlega ekki tekist að birta honum ákæruna en hún er birt í Lögbirtingablaðinu.

Hann er annars vegar ákærður fyrir vopnalagabrot með því að hafa, sunnudaginn 17. mars 2024, í búningsklefa Kópavogslaugar haft í vörslum sínum tvo hnífa, annan með 13 sentimetra blaði og hinn með 16 sentimetra blaði sem hann framvísaði við afskipti lögreglu.

Hins vegar er maðurinn ákærður fyrir vopnalagabrot með því að hafa, laugardaginn 23. mars 2024, í verslun Hagkaupa í Skeifunni 15 haft í vörslum sínum tvo hnífa í hulstri með 9 sentimetra blöðum, sem hann framvísaði við afskipti lögreglu.

Í ákærunni er þess krafist að maðurinn verði dæmdur til refsingar, greiðslu alls sakarkostnaðar og að allir hnífarnir fjórir verði gerðir upptækir.

Málið verður tekið fyrir við Héraðsdóm Reykjavíkur í næsta mánuði og mæti maðurinn ekki verður það metið sem ígildi játningar.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Ferðamenn frá Bandaríkjunum auðveldastir í samskiptum

Ferðamenn frá Bandaríkjunum auðveldastir í samskiptum
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Áframhaldandi sterkur rekstur hjá Nova

Áframhaldandi sterkur rekstur hjá Nova
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Listi Samfylkingarinnar í Reykjavík kynntur – Regína í sjöunda sæti

Listi Samfylkingarinnar í Reykjavík kynntur – Regína í sjöunda sæti
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Skatturinn vildi vita hvaðan eigandi tælenskrar nuddstofu fékk alla þessa peninga – Hún sagðist bara vera svona heppin

Skatturinn vildi vita hvaðan eigandi tælenskrar nuddstofu fékk alla þessa peninga – Hún sagðist bara vera svona heppin