fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
433Sport

Guðmundur lýsir erfiðum tíma í New York á meðan heimsfaraldrinum stóð – „Ég var rekinn heim af löggunni“

433
Sunnudaginn 25. janúar 2026 10:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Guðmundur Þórarinsson, atvinnu- og landsliðsmaður til margra ára og nýjasti leikmaður ÍA, var gestur Helga Fannars Sigurðssonar í Íþróttavikunni.

Guðmundur flutti til New York til að spila með New York City í MLS-deildinni árið 2020, skömmu áður en heimsfaraldur skall á. Það var ekkert grín að vera í borginni á þeim tíma, enda útgöngubann og mikil óvissa.

„Það var bara eitt það versta í heiminum (reglur vegna Covid í New York). Ég fæ 10-14 daga af frelsi og rétt kem mér af hóteli inn á íbúð, vissi náttúrulega ekkert að þetta væri að fara að gerast en ég var fljótur að finna mér íbúð. Svo þegar þetta fer allt af stað, ég var bara með rúm og fjóra stóla við eitthvað matarborð. Ég var ekki með sófa og þetta voru bara 2-3 mánuðir af inniveru og einhverju stórfurðulegu,“ sagði Guðmundur.

video
play-sharp-fill

„Maður vissi ekkert hvað þetta yrðu margir dagar og á endanum urðu þetta þrír mánuðir þar sem við vorum ekkert að hittast, vorum bara heima hjá okkur.“

Guðmundur kynntist nýjum liðsfélögum eðlilega lítið á þessum tíma.

„Eftir svona mánuð eða 6 vikur hringdi ég í liðsfélaga minn í einhverri neyð: „Get ég komið og drukkið einn einn kaffibolla því ég er ekki búinn að hitta manneskju í sex vikur.“ Þetta var rosalegt og alveg erfitt, að vera kominn í nýtt land, nýtt umhverfi, þekkja engan og vera bókstaflega bara inni í íbúðinni sinni.

Það var bara útgöngubann. Þú máttir fara í búðarferð og kaupa í ísskápinn. Ég ætlaði að fara út að hlaupa en löggan var bara á vappinu og ef þau sáu fólk sem var út á hlaupa var það bara sent heim. Ég var rekinn heim 2-3 af löggunni en slapp örugglega í tíu skipti.“

Þátturinn er í spilaranum.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 7 klukkutímum

Tóku Jóa Kalla og Hafnfirðinga til bæna vegna uppákomunnar á föstudag: „Hann gat ekki sætt sig við að Fylkismenn myndu ekki láta hann bully-a sig“

Tóku Jóa Kalla og Hafnfirðinga til bæna vegna uppákomunnar á föstudag: „Hann gat ekki sætt sig við að Fylkismenn myndu ekki láta hann bully-a sig“
433Sport
Fyrir 9 klukkutímum

Liverpool gæti íhugað sölu – Áhugi frá Ítalíu

Liverpool gæti íhugað sölu – Áhugi frá Ítalíu
433Sport
Fyrir 9 klukkutímum

Íslenska liðið undirbýr sig af kappi á Spáni – Risastór vika framundan

Íslenska liðið undirbýr sig af kappi á Spáni – Risastór vika framundan
433Sport
Fyrir 12 klukkutímum

Rice fór meiddur af velli – Stuðningsmenn vonast til að færsla hans sé góðs viti

Rice fór meiddur af velli – Stuðningsmenn vonast til að færsla hans sé góðs viti
433Sport
Fyrir 12 klukkutímum

Myndband: Uppákoma í Garðabæ um helgina vekur athygli – Hvað sagði Samúel sem gerði allt vitlaust?

Myndband: Uppákoma í Garðabæ um helgina vekur athygli – Hvað sagði Samúel sem gerði allt vitlaust?
433Sport
Í gær

Lýsa þungum áhyggjum af stöðu mála í Hafnarfirði – „Þegar það verða svona læti er það slæmt“

Lýsa þungum áhyggjum af stöðu mála í Hafnarfirði – „Þegar það verða svona læti er það slæmt“
433Sport
Fyrir 2 dögum

Kom með áhugaverða spá fyrir sumarið – „Það er engin sérstök lógík á bak við það“

Kom með áhugaverða spá fyrir sumarið – „Það er engin sérstök lógík á bak við það“
433Sport
Fyrir 2 dögum

Van Persie reiður yfir óviðeigandi umræðu um Sterling

Van Persie reiður yfir óviðeigandi umræðu um Sterling
433Sport
Fyrir 2 dögum

Moyes kallar eftir því að tekið verið á skítabrögðum eftir umræðuna

Moyes kallar eftir því að tekið verið á skítabrögðum eftir umræðuna
Hide picture