fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Fréttir

Fjúkandi vond út í Vinnumálastofnun – „Óásættanleg og hreinlega móðgandi“

Ritstjórn DV
Fimmtudaginn 22. janúar 2026 17:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Bæjarstjórn Reykjanesbæjar lýsir yfir verulegri óánægju með framgöngu Vinnumálastofnunar við uppsögn á samningi við sveitarfélagið um þjónustu við umsækjendur um alþjóðlega vernd. Segir bæjarstjórn framkomu stofnunarinnar beinlínis óásættanlega og móðgandi. Krefst bæjarstjórn endurgreiðslu frá Vinnumálastofnun á kostnaði vegna þjónustunnar.

Málið var rætt á fundi bæjarstjórnar fyrr í vikunni í kjölfar umræðu í síðustu viku á fundi velferðarráðs bæjarins. Var í sameiginlegri bókun allra fulltrúa í velferðarráði lýst yfir miklum vonbrigðum með synjun Vinnumálastofnunar á endurgreiðslukröfu bæjarins vegna uppgjörs í tengslum við uppsögn þjónustusamningsins um þjónustu við alþjóðlega vernd. Að mati ráðsins er synjunin ekki í samræmi við þá ábyrgð og þær skuldbindingar sem leiddu af uppsögn samningsins, né þann kostnað sem sveitarfélagið varð fyrir vegna leigu, viðgerða, flutningskostnaðar og launauppgjörs.  Segir að lokum í bókuninni að ráðið telji brýnt að málið verði tekið til endurskoðunar og óskað hafi verið eftir sundurliðuðu svari við kröfu Reykjanesbæjar.

Á fundi bæjarstjórnar lögðu allir 11 bæjarfulltrúar fram sameiginlega bókun vegna málsins og var hún enn harðorðari en bókun velferðarráðs. Í bókun bæjarstjórnar segir að Reykjanesbær hafi í 21 ár sinnt þjónustu við umsækjendur um alþjóðlega vernd, lengi vel aðeins eitt af þremur sveitarfélögum á Íslandi. Nýlega hafi Vinnumálastofnun slitið samningum við bæinn með þriggja mánaða fyrirvara og ætli hér eftir að sjá um alfarið málaflokk umsækjenda sjálf.

Borga

Eftir standi uppgjör verkefnisins; húsaleiga, viðgerðir og þrif eftir uppsögn á íbúðum ásamt uppgjöri launa starfsfólks. Þetta sé sanngirniskrafa, þar sem ráðningasamningar og leigusamningar séu með lengri uppsagnarfrest en þrjá mánuði. Um sé að ræða í heildina tæpar 23 milljónir króna sem Vinnumálastofnun ætlist til að Reykjanesbær greiði sem eftirstöðvar af þjónustu í 21 ár með þriggja mánaða uppsagnarfrest.
Miðað við lokaorð bókunarinnar er óhætt að segja að óánægja bæjarstjórnarinnar í garð Vinnumálastofnunar sé töluvert mikil:
„Þessi vinnubrögð eru til háborinnar skammar. Bæjarfulltrúar Reykjanesbæjar munu fara fram á fund með Vinnumálastofnun vegna málsins. Framkoma ríkisstofnunar gagnvart áratugalangri þjónustu Reykjanesbæjar er með ólíkindum, eru óásættanleg og hreinlega móðgandi.“
Til stóð upphaflega að aðeins fulltrúar í meirihluta bæjarstjórnar legðu fram bókunina en Margrét Þórarinsdóttir bæjarfulltrúi Umbótar, sem er í minnihluta, gagnrýndi það harðlega og sagði það fáránlegt að minnihlutanum hefði ekki verið boðið að vera með og sagði meirihlutann aðeins bjóða upp á samstarf þegar það hentaði honum. Sagði hún að Margrét Sanders oddviti Sjálfstæðisflokksins myndi leggja fram bókun um málið fyrir hönd minnihlutans. Guðný Birna Guðmundsdóttir forseti bæjarstjórnar og oddviti Samfylkingarinnar sagði minnihlutanum velkomið að vera með og var í kjölfarið gert fundarhlé og náðist í því samstaða um sameiginlega bókun meiri- og minnihluta með áðurnefndri gagnrýni á Vinnumálastofnun.
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Ferðamenn frá Bandaríkjunum auðveldastir í samskiptum

Ferðamenn frá Bandaríkjunum auðveldastir í samskiptum
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Áframhaldandi sterkur rekstur hjá Nova

Áframhaldandi sterkur rekstur hjá Nova
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Útskýrir „eitraðan kokteil“ hagstjórnarmistaka sem þjóðin er enn að gjalda fyrir – „Þetta ástand fékk að lifa allt of lengi“

Útskýrir „eitraðan kokteil“ hagstjórnarmistaka sem þjóðin er enn að gjalda fyrir – „Þetta ástand fékk að lifa allt of lengi“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Tara Margrét lætur aftur í sér heyra og rifjar upp stirð samskipti við Ölmu – „Er ekki að reyna að breyta neinu“

Tara Margrét lætur aftur í sér heyra og rifjar upp stirð samskipti við Ölmu – „Er ekki að reyna að breyta neinu“