

Þróttur vann ótrúlegan 5-1 sigur á KR í Reykjavíkurmótinu um helgina, úrslit sem vakið hafa athygli.
Tryggvi Snær Geirsson og Aron Snær Ingason komust á blað og þá gerðu KR-ingar sjálfsmark áður en Adam Árni Róbertsson bætti við fjórða mark Þróttara.
Róbert Elís Hlynsson skoraði eina mark KR-inga í leiknum áður en Eiríkur Þorsteinsson Blöndal gerði endanlega út um leikinn með fimmta markinu.
Varnarleikur KR var mikið gagnrýndur á síðustu leiktíð en mörkin úr þessum leik voru nokkur ansi skrautleg.