

Barnastjarnan Mara Wilson sló í gegn í kvikmyndinni Matilda sem kom út árið 1996. Frægðin reyndist Wilson, eins og mörgum öðrum barnastjörnum, þungbær. Gömul sár opnuðust svo nýlega sem varð til þess að um helgina birti Wilson, sem í dag er 38 ára, grein hjá The Guardian þar sem hún varar við gervigreind.
Greinina byggir Wilson á eigin reynslu sem barnastjarna og notar hana til að leggja áherslu á hversu skaðleg þessi nýja tækni getur verið þegar hún er notuð til að framleiða kynferðislegt efni af raunverulegu fólki, þar með talið börnum, í þeirra óþökk.
„Á aldrinum 5-13 ára var ég barnaleikari. Og jafnvel þó við höfum undanfarið heyrt hryllingssögur um þá ofbeldisfullu hluti sem barnaleikarar ganga í gegnum á bak við tjöldin, þá upplifði ég mig alltaf örugga við tökur.“
Hún segist þó ekki hafa upplifað sig örugga gagnvart almenningi. Myndir af henni voru notaðar til að framleiða barnaníðsefni á netinu og á þeim tíma var hún ekki einu sinni orðin unglingur.
„Myndir af mér birtust á blætisíðum og höfðu verið photoshoppaðar í klám. Fullorðnir karlmenn sendu mér óhugnanleg bréf. Ég var ekki falleg stúlka, vandræðalegi aldurinn minn stóð yfir frá 10 ára aldri þar til ég varð um 25 ára, og ég lék nánast alfarið í fjölskyldumyndum. En ég var opinber manneskja svo það var hægt að nálgast mig. Þetta er einmitt það sem barnaníðingar leitast eftir aðgengi. Og ekkert gerði mig aðgengilegri en Internetið.“
Leikkonan hélt svo áfram og útskýrði að það hefði engu máli breytt þó að klámmyndirnar af henni væru ekki raunverulegar heldur falsaðar.
„Þetta var sársaukafull og meiðandi lífsreynsla; lifandi martröð sem ég vonaði að ekkert annað barn þyrfti að upplifa.“
Wilson óttast að gervigreindin, sem undanfarið hefur verið notuð til að framleiða efni sem kalla mætti stafrænt kynferðisofbeldi eða barnaníð, sé að stofna konum og börnum í hættu óháð því hvort þau séu opinberar manneskjur eða ekki.
Nú sé staðan þannig að hægt er að framleiða myndefni af öllum börnum sem myndir hafa birst af á netinu.
„Milljónir barna gætu verið neydd til að upplifa sömu martröðina og ég.“
Fyrrum barnastjarnan hvetur til aðgerða gegn þeim eigendum gervigreindanna sem eru notaðar í þetta ofbeldi. Tæknifyrirtækin verði að bregðast við þessu en Wilson telur ekki duga til að sniðganga fyrirtækin.
„Við verðum að krefjast þess að fyrirtækin sem heimila framleiðslu barnaníðsefnis verði látin sæta ábyrgð. Við þurfum að krefjast lagasetningar og öryggisreglna.
Við þurfum líka að líta í eigin barm: enginn vill hugsa út í það að ef þeir deila myndum af barni sínu geti þessar myndir endað í barnaníðsefni. En þetta er hætta, hætta sem foreldrar þurfa að verja ungu börnin sín frá og vara eldri börnin sín við.“
„