fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Fréttir

Högni grunaður um kynferðisbrot gegn 16 ára stúlku í Kólumbíu – Var í slagtogi við aðra þegar hann var handtekinn

Ritstjórn DV
Laugardaginn 17. janúar 2026 09:23

Högni Kjartan í haldi kólumbískra lögreglumanna

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Högni Kjartan Þorkelsson, sem situr í gæsluvarðhaldi í kólumbísku borginni Medellín vegna gruns um kynferðisbrot gegn 16 ára stúlku, var staddur með annarri ólögráða stúlku þegar hann var handtekinn á Þorláksmessu á síðasta ári. Frá þessu greinir Vísir og hefur eftir tilkynningu frá þarlendum lögregluyfirvöldum.

Kemur fram að Högni Kjartan, sem var á ferðalagi í landinu, hafi haft samband við stúlkuna í San Dieogo-hverfi Medellín-borgar og falast eftir kynmökum gegn greiðslu. Hann hafi síðan brotið á henni á íbúð í öðru hverfi borgarinnar. Þegar stúlkan slapp úr klóm Högna Kjartans leitaði hún til lögreglu og var Íslendingurinn handtekinn í kjölfarið.

Þá kemur fram að Högni Kjartan hafi verið í slagtogi við aðra unga stúlku, 17 ára gamla, ásamt móður hennar þegar hann var handtekinn þann 23. desember.  Kólumbísk yfirvöld kanna nú hvort að móðirin hafi aðstoðað Högna Kjartan sem gæti leitt til rannsóknar á hennar hlut.

Sjá nánari umfjöllun um málið á vef Vísis.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Oddný táraðist er hún rifjaði upp erfiðleika í æsku – „Ég ætla nú ekki að fara gráta í viðtalinu“

Oddný táraðist er hún rifjaði upp erfiðleika í æsku – „Ég ætla nú ekki að fara gráta í viðtalinu“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Sagan endalausa? Margrét ósátt við dómara sem hefur gefið út dagsetningu á endurflutningi á sakamáli gegn henni

Sagan endalausa? Margrét ósátt við dómara sem hefur gefið út dagsetningu á endurflutningi á sakamáli gegn henni
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Fastus afhenti Brunavörnum Rangársýslu nýjan dælubíl

Fastus afhenti Brunavörnum Rangársýslu nýjan dælubíl
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Steinunn og Jacques urðu ástfangin við fyrstu kynni en leiðir skildu í 40 ár – „Höfum við ákveðið að týna ekki ástinni aftur, aldrei aftur“

Steinunn og Jacques urðu ástfangin við fyrstu kynni en leiðir skildu í 40 ár – „Höfum við ákveðið að týna ekki ástinni aftur, aldrei aftur“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Gunnar Smári kemur RÚV til varnar – „Skammarlegt að lesa einhverjar vandlætingargreinar um blaðamennsku Þóru“

Gunnar Smári kemur RÚV til varnar – „Skammarlegt að lesa einhverjar vandlætingargreinar um blaðamennsku Þóru“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Björn afþakkaði boð Melaniu Trump

Björn afþakkaði boð Melaniu Trump