

Victoria Beckham hefur ekki gefist upp á sambandinu við elsta son sinn, Brooklyn Beckham, þrátt fyrir langvarandi fjölskylduágreining sem undanfarið hefur vakið mikla athygli.
Ágreiningurinn mun hafa byrjað í kjölfar brúðkaups Brooklyn og Nicola Peltz í apríl 2022. Þar var meðal annars rætt um ósætti vegna brúðarkjólsins, sem Victoria hannaði ekki, auk þess sem samband Romeo Beckham við fyrirsætuna og plötusnúðinn Kim Turnbull á að hafa aukið spennu innan fjölskyldunnar.
Síðan þá hefur Brooklyn verið fjarverandi á fjölmörgum stórviðburðum í lífi fjölskyldunnar, þar á meðal 50 ára afmæli David Beckham, veislu vegna riddarakrossins sem hann hlaut og jólahaldi fjölskyldunnar. Hann var einnig sagður hafa lokað á foreldra sína og systkini á Instagram.
Nýlega greindu breskir fjölmiðlar frá því að Brooklyn hefði, í gegnum lögmenn, óskað eftir því að foreldrar hans hefðu ekki samband við hann eða tjáðu sig opinberlega, meðal annars til að vernda andlega heilsu sína.
Samkvæmt heimildamönnum götublaða í kringum fjölskylduna heldur Victoria þó í vonina. „Hún mun aldrei gefast upp á Brooklyn, dyrnar standa alltaf opnar,“ segir heimildarmaður og telur mögulegt að árið 2026 gæti markað einhvers konar sátt í fjölskyldunni.