

Slúðurblaðamaðurinn Rob Shuter segir að Nick Reiner sé veruleikafirrtur. Hann sitji nú í fangelsi, grunaður um að hafa banað foreldrum sínum, en virðist ekki gera sér grein fyrir hvað hann á að hafa gert. Til dæmis hlakki hann til að halda upp á 79 ára afmæli föður síns í mars og geri sér vonir um að vera þá laus úr fangelsi. Varla verður mikið haldið upp á afmælið þar sem faðir hans, leikstjórinn Rob Reiner, er látinn.
„Hann trúir því virkilega að hann verði laus í tæka tíð. Hann virðist alls ekki gera sér grein fyrir því hvers vegna hann er á bak við lás og slá,“ skrifar Shuter á Substack-síðu sína. Hann hefur eftir ónefndum heimildarmanni: „Þetta er eins og að tala við einhvern sem lifir í öðrum heimi en við hin.“
Nick glímir við geðhvarfaklofa, sem er sambland af geðhvörfum og geðklofa. Um það bil mánuði áður en hann á að hafa myrt foreldra sína var hann settur á ný lyf og fór þá að halla verulega undan fæti hjá honum.
„Það virðist ekkert ná að koma honum á réttan kjöl og það næst bara ekki í hann.“
Shuter telur líklegt að verjendur Nick muni halda því fram að hann hafi ekki verið fær um að stjórna gjörðum sínum á verknaðarstund vegna geðsjúkdóms.